Lög STFÍ
Lög Félags stjórnenda og sjálfstætt starfandi í Tæknifræðingafélagi Íslands.
1. Kafli.
Nafn félagsins og tilgangur.
1. grein.
Félagið heitir Félag stjórnenda og sjálfstætt starfandi í Tæknifræðingafélagi Íslands, skammstafað STFÍ. Félagið hefur aðsetur í skrifstofu Tæknifræðingafélags Íslands.
2. grein.
2.1. Félagið er félag tæknifræðinga sem gegna stjórnunarstöðum og félaga sem starfa sjálfstætt.
2.2. Félagið gætir hagsmuna félagsmanna sinna í hvívetna. Félagið á að vera málsvari félagsmanna út á við. Félagið á að vera umsagnaraðili fyrir TFÍ í málum sem tengjast fyrirtækjarekstri. Að því leyti sem ágreiningur kann að verða um verkefni félagsins og annarra félaga innan TFÍ sker aðalstjórn TFÍ úr.
2.3. Félagið á að standa fyrir námskeiðum og fyrirlestrum með reglubundnum hætti.
2.4. Félagið setur siðareglur fyrir félagsmenn og skipar þriggja manna nefnd til að framfylgja þeim.
2.5. Félagið leitast við að veita félagsmönnum sem þess óska, ráð varðandi stofnun og rekstur fyrirtækja.
2.6. Félagið leitast við ef óskað er eftir, að leiðbeina þeim félagmönnum sem hyggjast taka að sér stjórnunarstöður og aðstoða við gerð starfssamninga.
2.7. Félagið á að vera leiðandi í að koma auga á nýsköpun innan verkefnasviðs tæknifræðinga með það að markmiði að fjölga verkefnatækifærum félagsmanna og gera starfssvið þeirra breiðara.
2.8. Félagið leitast við, ef óskað er eftir, að leiðbeina félagsmönnum varðandi lögfræði aðstoð.
2.9. Félagið leitast við, ef óskað er eftir, að veita ráðgjöf varðandi eftirlauna- og lífeyrissjóðsmál.
3. grein.
Félagið er deild innan Tæknifræðingafélags Íslands en er því óháð um málefni sem fjallað er um í 2. gr. Félagið hefur sjálfstæðan fjárhag.
2. Kafli.
4. grein.
Rétt að aðild eiga eingöngu tæknifræðingar sem eru í Tæknifræðingafélagi Íslands, eru stjórnendur og/eða sjálfstætt starfandi.
4.1. Stjórnendur í fyrirtækjum eða stofnunum sem eru óbundnir kjarasamningum.
Með stjórnendum er átt við þá sem bera stjórnunarlega og/eða fjárhagslega ábyrgð að öllu leiti eða að hluta til hjá þeim fyrirtækjum eða stofnunum sem þeir starfa hjá.
4.2. Sjálfstætt starfandi teljast þeir sem vinna við eiginn rekstur óháð félagsformi eða eru eigendur að minnsta kosti 5% hlutar þess fyrirtækis sem þeir starfa hjá.
5. grein.
Félagar STFÍ skuldbinda sig til að hlíta lögum félagsins og löglega gerðum samþykktum þess. Komi félagsmaður fram á þann hátt, að ekki samræmist tilgangi félagsins, sameiginlegum hagsmunum félagsmanna eða hag eða heiðri tæknifræðingastéttarinnar, getur félagsstjórn lagt til að honum verði vikið úr félaginu. Til staðfestingar á brottvikningu félagsmanns þarf 2/3 atkvæða á félagsfundi, þar sem slíkt mál er til meðferðar skv. fundarboði.
6. grein.
Ágreiningi, sem rísa kann á milli einstakra félagsmanna annars vegar og félagsstjórnarinnar hins vegar, um rétt eða skyldur félagsmanna, má vísa til félagsfundar, og er úrskurður hans endanlegur.
7. grein.
Úrsögn úr TFÍ telst sjálfkrafa vera úrsögn úr STFÍ.
8. grein.
Félagsgjald skal ákveða fyrir hvert ár á aðalfundi þess árs. Árgjald í félaginu er innheimt með félgsgjöldum TFÍ, sem gerir STFÍ skil eftir því sem gjöldin innheimtast.
3. Kafli.
Félagsfundir og stjórn.
9. grein.
Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málum félagsins sbr. þó 5. og 6. gr. Hann skal haldinn fyrir 1. apríl ár hvert og boðaður öllum félagsmönnum með bréfi, símskeyti eða á annan jafntryggan hátt með minnst viku fyrirvara. Í fundarboði skal greina fundarefni og tillögur þær sem stjórn félagsins hyggst bera undir atkvæði.
Félagsfundi skal halda eins oft og þurfa þykir. Stjórn skal gefa út fundadagskrá í upphafi starfsárs. Dagskránefnd skipuleggur dagskrá félagsfunda. Tveggja manna dagskrárnefnd skal skipuð af stjórn.
Boði stjórnin ekki slíkan fund innan viku frá því henni hefur borist krafan, geta þeir sem fundar óska, sjálfir boðað til hans.
10. grein.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
2. Reikningsskil.
3. Skýrslur og tillögur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
4. Tillögur félagsstjórnar.
5. Kjör félagsstjórnar.
6. Kjör skoðunarmanna reikninga.
7. Lagabreytingar.
8. Önnur mál.
11. grein.
Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað. Afl atkvæða ræður úrslitum.
Til breytinga á lögum félagsins þarf þó 2/3 atkvæða þeirra félaga, sem sækja fundinn.
Um aðra félagsfundi fer sem um aðalfund eftir því sem við á.
12. grein.
Hverjum félagsfundi stýrir kjörinn fundarstjóri. Hann tilnefnir ritara. Fundargerðir skal bóka og bera upp til samþykktar í fundarlok. Fundurinn getur ákveðið að fresta því til næsta fundar.
13. grein.
STFÍ er ekki aðili að gerð kjarasamninga.
14. grein.
Stjórn félagsins er skipuð þremur mönnum. Formaður skal kosinn sérstaklega til eins árs í senn. Í stjórn sitja auk formanns tveir meðstjórnendur, kosnir til eins ára í senn. Stjórnin kýs gjaldkera og ritara úr sínum hópi.
Félagsstjórn tilnefnir einn úr félaginu til setu í stjórn TFÍ.
15. grein.
Félagskjörnir skoðunarmenn reikninga eru tveir. Þeir skulu kjörnir á aðalfundi til eins árs í senn.
16. grein.
Sérhverjum félaga er skylt að verða við kosningu til starfa í félaginu, nema gild forföll hamli, en getur neitað endurkjöri í jafnlangan tíma og hann hefur gengt störfum.
17. grein.
Félagsstjórn heldur fund, þegar formaður eða einhver stjórnarmanna óskar. Formaður boðar til stjórnarfunda og stýrir þeim. Ritari skráir gerðir stjórnar í þar til gerða bók. Gjaldkeri varðveitir sjóð félagsins skv. nánari ákvörðun félagsstjórnar eða félagsfundar, innheimtir félagsgjöld og annast skil.
Skrifstofa TFÍ sér um reikningshald og reikningsskil.
Stjórnarfundir eru lögmætir, ef meirihluti stjórnar mætir. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundum. Séu atkvæði jöfn, ræður atkvæði formanns úrslitum.
Félagsstjórn ber að halda nákvæma skrá um félagsmenn.
Félagaskrá skal liggja frammi á öllum félagsfundum.
4. Kafli.
Lokaákvæði.
18. grein.
Félaginu verður því aðeins slitið að félagsslitin séu samþykkt á sama hátt og gildir um lagabreytingar. Þriðjungur atkvæðisbærra félagsmanna á félagsfundi getur krafist allsherjaratkvæðagreiðslu samanber 11. gr., um það hvort slíta eigi félaginu.
Félagsslitafundur tekur ákvörðun um ráðstöfun eigna félagsins.
Samþykkt á stofnfundi STFÍ þann 24. október 1996. Breytt á aðaðfundi 2003.
