Ertu félagi?

Til tæknifræðinga utan félags

Inntökubeiðni | Leiðbeiningar MTFÍ | Inntökureglur

Margir spyrja hvaða ávinningur sé af því að vera í Tæknifræðingafélaginu. Því miður svara margir þessari spurningu þannig:

"Ég borga mörg þúsund í félagsgjöld á ári og þessir peningar skila sér aldrei..."

Þetta svar er vissulega rétt í þröngum bókhaldslegum skilningi. Hins vegar er nauðsynlegt að skoða dæmið frá breiðara sjónarhorni. Sá félagsmaður sem velur að standa utan félagsins sparar vissulega félagsgjöldin en nýtur eftir sem áður tilvistar félagsins og þeirra verka sem félagið annast fyrir stéttina í heild. Samanburðurinn er því aðeins sanngjarn að menn beri saman félagsaðild annars vegar og félagið sé ekki til hins vegar.

Lítum á hvað félagið gerir:

  • Semur um réttindi og kjör tæknifræðinga
  • Veitir félagsmönnum aðstoð við gerð ráðningasamninga
  • Veitir lögræðiaðstoð
  • Stendur að símenntun og fræðslu
  • Gengst fyrir ráðstefnum, fundum og fyrirlestrum
  • Stuðlar að jákvæðri ímynd tæknifræðinga
  • Eykur gagnkvæm kynni félagsmanna
  • Gengst fyrir skoðunarferðum og vettvangskönnunum
  • Gefur út fagrit og rit sem fjalla um málefni stéttarinnar
  • Stendur að umræðu um málefni stéttar og félags á internetinu
  • Stendur vörð um menntun íslenskra tæknifræðinga
  • Annast erlend samskipti varðandi starfsréttindi
  • Stendur vörð um starfsheiti tæknifræðinga
  • Veitir aðild að systurfélögum erlendis
  • Semur við valin fyrirtæki um afsláttarkjör fyrir félagsmenn

Næstum allt sem að ofan greinir kemur beint eða óbeint öllum tæknifræðingum til góða. Legðu því hönd á plóginn og vertu með!

Inntökubeiðni | Leiðbeiningar MTFÍ | Inntökureglur



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.