Orkuveita Reykjavíkur
Orkuveita Reykjavíkur - OR
Kjarasamningur við Orkuveitu Reykjavíkur (OR) var undirritaður í maí 2011 og er gildistími hans frá 1. maí 2011 til 31. mars 2014.
Samningurinn gildir fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga sem starfa hjá OR.
Launahækkanir samningsins eru:
- Eingreiðsla að fjárhæð 50.000,- kr. fyrir 1. júlí 2011.
- 1. júní 2011 hækka laun um 4,25 %
- 1. febrúar 2012 hækka laun um 3,5 % og
- 1. febrúar 2013 hækka laun um 3,25 %
Orlofsuppbót greidd 1. maí 2011 er 36.900,- kr. með 10.000 kr. eingreiðslu og
Desemberuppbót greidd 1. desember 2011 er 74.600 kr. með 15.000 kr. eingreiðslu
Samkvæmt kjarasamningnum greiðir OR í eftirtalda sjóði viðkomandi kjarafélags.
- Í Fjölskyldu- og styrktarsjóð 0,75% af heildarlaunum.
- Í Orlofssjóð 0,25% í af heildarlaunum.
- Í Vísinda- og starfsmenntunarsjóð 1,0% af heildarlaunum og
- Í Starfsendurhæfingarsjóð 0,13% af heildarlaunum
Vakin er athygli á nýrri grein varðandi greiðslu yfirvinnu með frítöku.
