Samkomulag við borg 2004 - Starfsmat

Samkomulag samningsaðila vegna seinkunar á innleiðingu á nýju starfs- og hæfnislaunakerfi, starfsmanna Reykjavíkurborgar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, Eflingu-stéttarfélagi og Kjarafélagi Tæk

Samningsaðilar eru sammála um eftirfarandi varðandi framkvæmd kjarasamninga aðila:

1. Að fela starfsmatsnefnd að ljúka starfsmatsviðtölum og launatengingu starfsmats eigi síðar en 15. október 2004 og greiða laun samkvæmt því hinn 1. nóvember 2004.

2. Að starfsheiti (í samræmi við ístarf-staðla) verði birt á launaseðlum 1. mars 2004.

3. Að Reykjavíkurborg kynni samningsaðilum 15. febrúar 2004 hvaða stofnanir hafa enn ekki gert símenntunaráætlanir fyrir starfsmenn. Reykjavíkurborg tryggi að símenntunaráætlanir verði gerðar þar sem vanhöld eru á í samræmi við ákvæði kjarasamninga.

4. Að hæfnislaun vegna símenntunar komi til framkvæmda hinn 1. mars 2004 og taki gildi afturvirkt miðað við 1. desember 2002, sbr. ákvæði kjarasamninga um gildistöku hæfnislauna. Stofnanir og fyrirtæki annist framkvæmdina í samráði við samningsaðila. Hæfnislaun samkvæmt eldra fyrirkomulagi falli niður frá gildistöku nýrra hæfnislauna.

5. Að störfum tæknifræðinga verði grunnraðað í nýja launatöflu til starfslauna til bráðabirgða af samstarfsnefnd samningsaðila og starfsmönnum raðað til hæfnislauna vegna símenntunar í samræmi við ákvæði 16.3.2 í kjarasamningi aðila, sbr. 4.tl. að ofan.

6. Að launapottar skv. yfirlýsingum með kjarasamningum dags. 2. mars 2001 og 22. mars 2001, 1.12.2002 vegna launaleiðréttinga hækki um 3% miðað við 1.1.2003 og 1.1.2004 en launapottar 1.12.2003 hækki um 3% m.v. 1.1.2004.*

7. Að 3% áfangahækkun, sem tók gildi hinn 1. janúar 2004, færist fram til 1. september 2003 vegna þeirrar seinkunar sem orðin er á innleiðingu nýs launakerfis og komi mismunurinn til greiðslu hinn 1. mars 2004



Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica