Lög KTFÍ

Lög KTFÍ

Kjarafélag Tæknifræðingafélags Íslands

samþykkt á stofnfundi 3. október 1996


I. kafli.


NAFN FÉLAGSINS OG TILGANGUR

1. gr.
Félagið heitir Kjarafélag Tæknifræðingafélags Íslands, skammstafað KTFÍ. Félagið hefur aðsetur í skrifstofu Tæknifræðingafélags Íslands (TFÍ).

2. gr.
Tilgangur félagsins er að vinna að bættum kjörum félagsmanna á hvern þann hátt sem landslög leyfa. Í því skyni fer félagið með samningsrétt fyrir hönd félagsmanna sinna um launakjör, tryggingamál, eftirlaun og annað sem launakjör þeirra snertir, sbr. 19. gr. laga þessara.

3. gr.
Félagið er deild innan Tæknifræðingafélags Íslands en hefur fullt sjálfstæði um málefni sem um er fjallað í 2. gr. Félagið hefur sjálfstæðan fjárhag.

II. kafli.


RÉTTINDI OG SKYLDUR FÉLAGSMANNA

4. gr.
Rétt til félagsaðildar eiga eingöngu tækinfræðingar sem eru launþegar og félagar í Tæknifræðingafélagi Íslands.

5. gr.
Félagar skuldbinda sig til að hlýða lögum félagsins og löglega gerðum samþykktum þess.

6. gr.
Úrsögn úr Tæknifræðingafélagi Íslands jafngildir úrsögn úr KTFÍ.

7. gr.
Félagsgjald skal ákveða fyrir hvert ár á aðalfundi þess árs. Ársgjald í félaginu er innheimt með félagsgjöldum TFÍ, sem gerir KTFÍ skil eftir því sem gjöldin innheimtast. Stjórn TFÍ er heimilt að innheimta félagsgjöldin með afdrætti af launum félagsmanna hjá viðkomandi vinnuveitendum.

8. gr.
Komi félagsmaður fram á þann hátt að ekki sæmrýmist tilgangi félagsins, sameiginlegri kjarabaráttu félagsmanna eða hag eða heiðri tæknifræðingastéttarinnar, getur stjórn félagsins ákveðið að svipta hann til bráðabirgða réttindum félagsmanns í félaginu. Ákvörðun stjórnar um slíkt skal vísað til næsta almenns félagsfundar, sem tekur endanlega afstöðu til þess hvort viðkomandi aðila skuli vikið úr félaginu eða ekki. Til staðfestingar á brottvikningu félagsmanns úr félaginu þarf 2/3 atkvæða á félagsfundi þar sem slíkt mál er til meðferðar samkvæmt fundarboði.

III. kafli


FÉLAGSFUNDIR

9. gr.
Almennur félagsfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Á félagsfundum ræður afl atkvæða, nema áskilinn sé aukinn meiri hluti samkvæmt lögum þessum.
Félagsfundi skal halda, þegar stjórnin telur þess þurfa eða 10 félagsmenn krefjast þess skriflega. Boði stjórn ekki til fundar innan 10 daga frá því slík krafa berst, geta þeir sem fundar óska boðað til hans sjálfir.
Félagsfundir eru lögmætir sé löglega til þeirra boðað.

10. gr.
Aðalfundur skal haldinn fyrir 1. apríl ár hvert og skal til hans boðað með bréfi, tölvupósti, símskeyti eða öðrum jafntryggum hætti til allra félagsmanna með viku fyrirvara. Í fundarboði skal greina dagskrárefni, tillögur að lagabreytingum og aðrar tillögur sem ætlað er að bornar verði undir atkvæði á fundinum.

11. gr.
Á aðalfundi skulu eftirtalin mál tekin fyrir:

  1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
  2. Reikningar félagsins fyrir liðið starfsár.
  3. Skýrslur og tillögur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
  4. Tillögur félagsstjórnar.
  5. Lagabreytingar.
  6. Kjör félagsstjórnar.
  7. Kjör endurskoðenda.
  8. Önnur mál.

12. gr.
Hverjum félagsfundi stýrir kjörinn fundarstjóri. Hann tilnefnir fundarritara. Fundargerðir skal bóka og bera upp til samþykktar í fundarlok. Fundur getur þó ákveðið að fela fundarstjóra og fundarritara að ljúka frágangi fundargerðar þannig að hún verði borin upp til samþykktar á næsta félagsfundi.

13. gr.
Stjórn félagsins er skipuð sjö mönnum. Formaður skal kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn, þannig að þrír ganga úr stjórn ár hvert. Stjórnin kýs varaformann úr sínum hópi og skiptir með sér verkum.
Forfallist formaður á kjörtímabilinu, tekur varaformaður sæti hans.
Félagsstjórn kýs einn úr sínum hópi, og annan til vara, til setu í aðalstjórn TFÍ til tveggja ára í senn.
Tveir varamenn skulu kosnir til eins árs í senn. Sá þeirra sem fleiri atkvæði hlýtur í kosningu tekur fyrr sæti í forföllum stjórnarmanns. Hafi varamenn hlotið jafnmörg atkvæði, skal hlutkesti ráða.

14. gr.
Félagskjörnir endurskoðendur eru tveir og einn til vara. Þeir skulu kosnir á aðalfundi til eins árs í senn.

15. gr.
Við kjör formanns, meðstjórnenda, varastjórnarmanna og endurskoðenda geta félagar sem ekki sækja aðalfund greitt atkvæði skriflega í atkvæðagreiðslu, með sama hætti og mælt er fyrir um í 1. tölul. 18. gr.

16. gr.
Sérhverjum félaga er skylt að verða við kosningu til trúnaðarstarfa í félaginu, nema gild forföll hamli, en neitað geta menn endurkjöri um jafnlangan tíma og þeir hafa gegnt slíkum störfum.

17. gr.
Félagsstjórn heldur fund, þegar formaður ákveður eða einhverjir stjórnarmanna óska þess. Formaður stýrir stjórnarfundum. Ritari skráir gerðir stjórnar í þar til gerða bók. Gjaldkeri varðveitir sjóð félagsins samkvæmt nánari ákvörðun félagsstjórnar eða félagsfundar. Skrifstofa TFÍ sér um reikningshald og reikningsskil.
Stjórnarfundir eru lögmætir, ef meiri hluti stjórnar er mættur. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundum. Séu atkvæði jöfn, ræður atkvæði formanns úrslitum.
Félagsstjórn skal halda nákvæma skrá um félagsmenn. Skal sú skrá liggja frammi á öllum félagsfundum.

18. gr.
Stjórn félagsins getur ákveðið að fram skuli fara allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna. Slíkar atkvæðagreiðslur fara fram með einhverjum eftirfarandi hætti:

  1. Tillaga sem taka skal ákvörðun um í allsherjaratkvæðagreiðslu skal send öllum atkvæðisbærum félagsmönnum ásamt atkvæðaseðli, sem á skal rita "já" eða "nei". Atkvæðaseðilinn skal láta í umslag og líma það aftur. Það umslag skal síðan látið í annað umslag, sem ber með sér frá hverjum það er. Það skal síðan sent félagsstjórn (eða eftir atvikum kjörstjórn) fyrir lok frests sem áður hefur verið tilkynnt um.
  2. Félagsstjórn (eftir atvikum kjörstjórn) tilkynnir félagsmönnum hvar allsherjaratkvæðagreiðsla skuli fara fram og hvaða tíma hún standi yfir. Atkvæðisbærir félagsmenn geta þá mætt þar og greitt atkvæði með því að skrifa "já" eða "nei" á atkvæðaseðil, sem síðan er látinn í lokaðar kassa. Atkvæðagreiðsla sem þessi skal standa ekki skemur en 2 daga, 12 klukkustundir hvorn dag.
  3. Félagsstjórn (eftir atvikum kjörstjórn) getur látið fara fram rafræna atkvæðagreiðslu að því tilskyldu að hún uppfylli almennar kröfur um persónuleynd. Atkvæðagreiðsla sem þessi skal standa ekki skemur en tvo sólarhringa.

IV. kafli


SAMNINGANEFNDIR - ATKVÆÐAGREIÐSLUR UM KJARASAMNINGA

19. gr.
Stjórn félagsins skipar samninganefndir, sem koma fram af hálfu félagsins í samningum við vinnuveitendur félagsmanna um kaup og kjör. Sérstök samninganefnd skal fara með samningsumboð fyrir þá félagsmenn sem lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986 taka til.

20. gr.
Kjarasamningar skulu kynntir á fundi, sem sú samninganefnd boðar til sem staðið hefur að gerð samningsins. Skal boðað til slíks fundar með þeim hætti og með þeim fyrirvara sem samninganefndin ákveður. Atkvæðagreiðsla um kjarasamninga skal fara fram að hætti 18. gr. laga þessara. Þeir félagsmenn einir skulu eiga atkvæðisrétt um kjarasamning, sem taka eiga laun á grundvelli hans.
Skal stjórn félagsins skipa kjörstjórn til að stjórna þeirri atkvæðagreiðslu.

 

V. kafli


FÉLAGSSLIT

21. gr.
Félaginu verður því aðeins slitið að félagsslitin séu samþykkt með sama hætti og lagabreytingar. Þriðjungur atkvæðisbærra félagsmanna á lögmætum félagsfundi getur krafist allsheraratkvæðagreiðslu félagsmanna um það hvort slíta skuli félaginu.

Félagsslitafundur tekur ákvörðun um ráðstöfun á eignum félagsins.


ÁKVÆÐI TIL BRÁÐABIRGÐA

  1. Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. hafa þeir menn, sem greitt hafa samningsréttargjald til Kjarafélags tæknifræðinga en uppfylla ekki skilyrði til inngöngu í Tæknifræðingafélag Íslands, sömu réttindi og skyldur í hinu nýja félagi og þeir höfðu í hinu eldra. - Samningsréttargjald skal ákveðið og innheimt árlega með sama hætti og félagsgjald samkvæmt 7. gr.
  2. Þegar stofnun félagsins hefur verið samþykkt á aðalfundi TFÍ 1996 tekur félagið við réttindum og skyldum Kjarafélags tæknifræðinga (KT) og Stéttarfélags tæknifræðinga (STÍ), sem þá eru um leið formlega lögð niður.

Samþykkt á stofnfundi KTFÍ þann 3. október 1996.
Breytt á aðalfundi 28. febrúar 2002 og aðalfund 27. febrúar 2003.

Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica