STARFSREGLUR
SJÓÐSSTJÓRNAR VÍSINDA- OG STARFSMENNTUNARSJÓÐS KJARAFÉLAGS TÆKNIFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS
frá 1. september 1998
Vísinda- og starfsmenntunarsjóður Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands (KTFÍ) starfar samkvæmt reglum um Vísinda- og starfsmenntunarsjóð KTFÍ á grundvelli kjarasamnings félagsins við fjármálaráðuneytið og Reykjavíkurborg frá 17. nóvember 1989. Tekjur sjóðsins eru framlag vinnuveitenda sem nemur 1,72% af föstum mánaðarlaunum félagsmanna.
STARFSREGLUR
1. Aðild að sjóðnum eiga þeir félagsmenn í KTFÍ sem greitt er reglulega fyrir í sjóðinn.
2. Sjóðsfélagar skulu að jafnaði eiga kost á hámarksfyrirgreiðslu, 300.000 kr. fyrir hver 3 ár sem greitt hefur verið fyrir þá í sjóðinn og hlutfallslega fyrir skemmri tíma, þeir öðlast fyrst rétt til fyrirgreiðslu, hámark 100.000 kr. eftir eins árs sjóðsaðild.
3. Styrkir eru veittir einstökum sjóðfélögum til:
a) að sækja námskeið og/eða ráðstefnur,
b) að stunda nám innanlands eða utan,
c) rannsókna og þróunarverkefna,
d) sjálfsnáms, t.d. til kaupa á fagbókum, sérhæfðum forritum eða tölvubúnaði.
4. Styrkir eru veittir til að standa straum af kostnaði umsækjanda, námskeiðs-, ráðstefnu- eða námskostnaði, ferðakostnaði og dvalarkostnaði innan lands eða utan, kostnaði við rannsókna- og þróunarverkefni eða sjálfsnám. Ferðakostnaður til útlanda miðast við hagstæðasta ferðamáta, venjulega APEX- eða PEX-fargjöld. Um dvalarkostnað og dagafjölda skulu gilda reglur ríkisins og dagpeningar skulu vera þeir sem ákvarðaðir eru af ferðakostnaðarnefnd.
5. Styrkir til kaupa á tölvubúnaði skulu ekki vera hærri en 75% af innkaupsverði og að hámarki 150.000 kr. Þessir styrkir eru tengdir afkomu sjóðsins og skulu aðrar umsóknir hafa forgang.
6. Styrkir eru veittir Kjarafélagi tæknifræðingafélags Íslands til:
a) námskeiðahalds á vegum þess eða í samstarfi við aðra
b) öflunar fagrita
c) að skapa aðstöðu til endurmenntunar.
7. Stjórn sjóðsins fjallar um umsóknir en getur einnig heimilað framkvæmdastjóra að afgreiða umsóknir sem falla innan áður samþykkts ramma. Allar umsóknir skulu síðan staðfestar af stjórn.
8. Umsóknum skal skilað á sérstöku umsóknareyðublaði til skrifstofu félagsins Engjateigi 9, Reykjavík eða til sjóðsstjórnar. Eyðublöð fást hjá sömu aðilum.
9. Á umsóknum skal vera lýsing á námi eða verkefni sem styrkur skal renna til, áætlaður kostnaður auk þess skal tilgreint hvenær og hvar fyrirhugað er að stunda námið eða vinna verkefnið. Stjórn sjóðsins hefur heimild til þess að óska eftir frekari upplýsingum.
10. Greiðslur úr sjóðnum skulu að jafnaði fara fram gegn framvísun reikninga og/eða annarra gagna sem sanna að styrkur nýtist til þeirra verkefna sem ætlað er.
11. Styrkþegi skal að verkefni loknu skila ferðareikningi/lokareikningi og örstuttri greinargerð um verkefnið.
