Breyttar aðstæður

Hér er safnað saman gagnlegum upplýsingum um breyttar aðstæður á vinnumarkaði og viðbrögð við þeim.

Halló Norðurlönd

Halló Norðurlönd er yfirskrift upplýsingaþjónustu fyrir þá sem ætla að flytja milli norrænna ríka, vinna þar eða stunda nám.

Samningur við Nýsköpunarmiðstöð

Þann 4. febrúar undirrituðu VFÍ, SV og TFÍ samstarfssamning við Nýsköpunarmiðstöð um sköpun atvinnutækifæra fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga. Samningurinn varðar meðal annars vinnuaðstöðu til frumkvöðlavinnu og ýmiss konar aðstoð og stuðning.

Sköpum framtíð fyrir tæknifólk

Í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu hefur vinnuhópur SV, TFÍ og VFÍ skapað vettvang fyrir þá sem hafa áhuga á að hittast og vinna saman að því að skapa sér framtíð. Fyrsti fundurinn var föstudaginn 6. febrúar og var almenn ánægja með hann. Verður hist alla föstudaga kl. 15-17 í fundasal Verkfræðingafélagsins á neðstu hæð að Engjateigi 9. Allir eru velkomnir. Á expert.is má lesa um það sem gert var á fyrsta fundinum.

Breyttar aðstæður og óvissa - leiðbeiningar

Óvissan sem einkennir vinnumarkaðinn er mörgum erfið. Í uppsagnahrinunni sem hefur gengið yfir um hver mánaðamót vakna margar spurningar um réttarstöðu og hvert er best að leita, ef á reynir. Leiðbeiningar, aðstoð og atriði er varða réttindi er að finna hér í skjalinu. Adstod

Viðbrögð við breyttri stöðu - hádegiserindi

Þann 15. desember 2008 var hádegisfundur SV og KTFÍ um stöðu tæknifræðinga og verkfræðinga í breyttu umhverfi. Erindi Þrúðar G. Haraldsdóttur, sviðsstjóra kjaramála.

Upplýsingar um störf erlendis

Á síðustu mánuðum hafa erlendir aðilar sett sig í samband við skrifstofu félaganna og viljað fá upplýsingar um stöðu mála hérlendis og möguleika á að ráða íslenska verkfræðinga og tæknifræðinga. Í skjalinu er haldið til haga upplýsingum um þessi fyrirtæki og möguleika á störfum erlendis.

Aðgerðir og nýsköpun

Mánudaginn 1. desember 2008 stóðu SV, TFÍ og VFÍ fyrir hádegisfundi um aðgerðir félaganna og möguleika fyrir nýsköpun og frumkvöðla í ljósi breyttrar stöðu á vinnumarkaði. Yfir 100 manns sóttu fundinn. Árni B. Björnsson framkvæmdastjóri kynnti aðgerðir félaganna. Snæbjörn Kristjánsson verkfræðingur á Nýsköpunarmiðstöð fjallaði um stuðningsmöguleika fyrir sprotafyrirtæki og Hjálmar Gíslason, frumkvöðull fjallaði um nýsköpun. Glærur úr erindi Snæbjörns eru hér í skjalinu pdf skjal með kynningu og kynningu Hjálmars má sækja hér.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.