Fréttir

25.2.2010 : Viðskiptasiðfræði

Félag stjórnenda og sjálfstætt starfandi í TFÍ bauð nýverið til hádegisnámskeiðs um viðskiptasiðfræði. Fyrirlesari var Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Ríflega 60 manns sóttu námskeiðið sem þótti takast vel og margt fróðlegt kom fram. Hér má nálgast glærur frá námskeiðinu.
 

12.2.2010 : Félagsfundur um kjaramál

Haldinn var almennur fundur um FRV kjarasamninginn í gær, fimmtudaginn 11. febrúar. Félagsmenn SV og KTFÍ fylktu liði á fundinn og voru fyrirspurnir og umræður um stöðu samningaviðræðna við FRV margar og miklar.  Kröfugerð félaganna var síðan rædd og leiddi sú umræða til einróma ályktunar fundarins; að kröfur sem samninganefnd KTFÍ og SV lagði fyrir FRV væru hófsamar.  Samninganefndinni var falið að beita sér til hins ýtrasta til að ná þeim fram. Fundarmenn undruðust mjög að kjarasamningar væru enn lausir eftir 1 og ½ árs tímabil.

 

11.2.2010 : Félögin á Framadögum 2010

Framadagar_2010Félög verkfræðinga og tæknifræðinga tóku þátt í Framadögum 2010 sem fóru fram í Háskólabíói 10. febrúar. Á Framadögum geta háskólanemar kynnst starfssemi fyrirtækja og félaga og búið sig undir þátttöku í atvinnulífinu. Fulltrúar félaganna stóðu vaktina og svöruðu margvíslegum spurningum um starfsemi félaganna og vinnumarkað verkfræðinga og tæknifræðinga.
 

9.2.2010 : Sumarúthlutun OBHM

Orlofsblað BHM 2010 er komið út. Í blaðinu er gerð grein fyrir þeim valkostum sem félagsmönnum bjóðast í sumar, bæði innanlands og utan. Umsóknarfrestur vegna umsókna um páska og útlönd (7/5 - 20/9 2010) rennur út á miðnætti 1. mars. Umsóknarfrestur vegna sumarúthlutunar innanlands rennur út á miðnætti 1. apríl n.k. Hægt er að ganga frá umsókn á bókunarvef sjóðsins, þar þarf að velja „umsóknir og úthlutanir“. KTFÍ er aðili að Orlofssjóði BHM. Félagsmenn sem starfa hjá opinberum, hálf opinberum og á almennum markaði geta greitt til OBHM

 

3.2.2010 : Námskeið um viðskiptasiðfræði

Þriðjudaginn 23. febrúar verður haldið hádegisnámskeið um viðskiptasiðfræði. Fyrirlesari er Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Námskeiðinu er ætlað að gera þátttakendum betur kleift að vega og meta þau álitamál sem verða á vegi þeirra í viðskiptum og rekstri. Námskeiðið er í boði Félags stjórnenda og sjálfstætt starfandi innan TFÍ (STFÍ) en allir félagsmenn TFÍ, SV og VFÍ eru velkomnir. Vinsamlega skráið ykkur með því að senda póst. Lesa meira
 

2.2.2010 : Staða samninga við FRV

Samninganefndir KTFÍ og SV við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV) boða til sameiginlegs kynningarfundar fimmtudaginn 11. febrúar kl. 17:15, að Engjateigi 9. Á fundinum verður kynnt staða samninga og rædd túlkun tiltekinna ákvæða kjarasamnings félaganna við FRV.

 

 

28.1.2010 : Fræ ársins veitt í fyrsta sinn

Hugmyndir Jóhannesar Loftssonar, efnaverkfræðings og byggingaverkfræðings og Ingólfs Harðarsonar, flugvirkja og rafeindavirkja eru Fræ ársins 2010. Fræið er frumkvöðlasamkeppni á vegum Háskólans í Reykjavík í samstarf ivið Klak – nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Hugmyndahús háskólanna og Auði Capital. Markmið keppninnar er að styðja við frumstig nýsköpunar. Jóhannes hefur í samstarfi við bandarískan samstarfsaðila þróað örþunnan loftræstibúnað fyrir hús sem er allt að tíu sinnum þynnri en sambærilegt öflugt tæki á markaðnum. Ingólfur hefur þróað nýja tegund af undirvagni fyrir rafmagnsfarartæki sem gerir þeim kleift að keyra beint til hliðar. Upplýsingar um Fræið og verðlaunahugmyndirnar.
 

27.1.2010 : Nýjar starfsreglur sjóða

Starfsreglur Fjölskyldu- og styrktarsjóðs KTFÍ og Sjúkrasjóðs KTFÍ hafa tekið nokkrum breytingum. Sjóðfélagar Fjölskyldu- og styrktarsjóðs starfa hjá ríki og sveitarfélögum en sjóðfélagar Sjúkrasjóðsins starfa samkvæmt kjarasamningi KTFÍ við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV). Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér reglurnar. Starfsreglur Fjölskyldu- og styrktarsjóðsins og starfsreglur Sjúkrasjóðsins.
 

26.1.2010 : Nýtt námskeið í skipulagsfræðum

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður upp á nýtt námskeið í skipulagsfræðum á meistarastigi. Námskeiðið ber yfirskriftina Borgarskipulag og hönnun. Upplýsingar um námskeiðið.
 

25.1.2010 : Tilboð hjá Endurmenntun HÍ

Félagsmenn SV, TFÍ og VFÍ fá sérstakan afslátt á nokkrum námskeiðum á sviði fjármála, menningar, sjálfsstyrkingar og starfsþróunar. Upplýsingar eru í skjalinu.

 

Fréttir eftir árum




þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.