Fréttir

2/2/12 : Tækniundrið Harpa - ráðstefna 8. febrúar

VFÍ og TFÍ boða til ráðstefnunnar: Tækniundrið Harpa miðvikudaginn 8. febrúar kl. 13 - 17 í Kaldalóni, Hörpu. Þar gefst einstakt tækifæri til að hlýða á verkfræðinga og tæknifræðinga sem voru í lykilstöðum við þessa einstöku framkvæmd.

Lesa meira
 

1/23/12 : Tzunami - glærur frá fundi

IMG_4194Matthew J. Roberts, verkefnisstjóri vatnaváeftirlits á Veðurstofu Íslands, var fyrirlesari á fundi Byggingarverkfræðideildar VFÍ í hádeginu í dag. Mjög góð mæting var á fundinn enda efnið áhugavert: Tzunami hættur við strendur Íslands.  Hér er hægt að nálgast glærur frá fundinum. Veðurstofan tekur þátt í evpópsku samstarfsverkefni þar sem unnið er m.a. að því að koma upp sameiginlegum gagnagrunni yfir tzunami hættur í Evrópu og viðbrögð við þeim. Sagt var frá fundinum í kvöldfréttum Sjónvarpsins.

 

1/17/12 : VFÍ 100 ára - afmælisdagskrá

Þann 19. apríl næstkomandi verður Verkfræðingafélag Íslands 100 ára. Afmælisins verður minnst með ýmsum hætti. Á afmælisdaginn, sem ber upp á sumardaginn fyrsta, verður glæsileg afmælishátíð í Hörpunni og er öllum félagsmönnum og öðrum velunnurum félagsins boðið til að fagna þessum merka áfanga. Hér má nálgast dagskrá afmælisársins.

 

1/11/12 : Nýr kjarasamningur við FRV samþykktur

Nýr kjarasamningur KTFÍ við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV) hefur verið samþykktur af báðum aðilum. Samningurinn hefur því tekið gildi. Nánari upplýsingar um samninginn eru hér.

 

1/3/12 : Maður ársins hjá Frjálsri verslun

Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits, var valinn maður ársins í atvinnulífinu árið 2011 af dómnefnd tímaritsins Frjáls verslun.  Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir afhenti Eyjólfi Árna viðurkenningu þessa efnis við formlega athöfn á vegum Frjálsrar verslunar  fimmtudaginn 29. desember. Nánar er sagt frá viðurkenningunni í frétt á vef Mannvits.

 

12/22/11 : Gleðilega hátíð

Utilegumadurinn[2]

Starfsfólk skrifstofu Verkfræðingafélags Íslands og Tæknifræðingafélags Íslands óskar félagsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári.

 

Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.

 

Vinsamlega athugið að skrifstofa félaganna verður lokuð á Þorláksmessu og milli jóla og nýárs.

 

12/20/11 : Rannsóknasjóður - úthlutun fyrir 2012

Stjórn Rannsóknasjóðs hefur úthlutað styrkjum til nýrra rannsóknaverkefna fyrir árið 2012. Að þessu sinni var úthlutað samtals um 297 milljónum króna. Alls bárust 267 umsóknir og voru 47 þeirra styrktar eða 17,7%. Sótt var um tæplega 1,8 milljarða króna en um 297 milljónum króna veitt eða 17,1% umbeðinnar upphæðar. Meðalupphæð umsókna var um 6,6 milljónir króna en meðalupphæð styrkja er rúmlega 6,3 milljónir króna. Hér má nálgast nánari upplýsingar.

 

12/16/11 : Nýr deildarforseti Tækni- og verkfræðideildar HR

gudrun_saevarsd

Guðrún A. Sævarsdóttir, verkfræðingur, dósent og sviðsstjóri véla- og rafmagnssviðs hefur verið ráðin deildarforseti Tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Guðrún tekur við starfinu 1. janúar. Hún lauk mastersprófi í eðlisfræði frá Háskóla Íslands og doktorsprófi í efnisverkfræði frá NTNU, í Þrándheimi í Noregi. Guðrún vann að rannsóknarverkefnum hjá Háskóla Íslands um sex ára skeið, var dósent í varma- og straumfræði við sama skóla á árunum 2006 - 2008, framkvæmdastjóri Orku- og tækniskóla Keilis 2008 og hefur síðan starfað við Tækni- og verkfræðideild HR. Guðrún situr í stjórn Verkfræðingafélags Íslands. Hún hefur sinnt ýmsum verkefnum fyrir félagið og sat m.a. í nefnd sem var falið að semja nýjar siðareglur félagsins sem voru samþykktar á aðalfundi síðastliðið vor.

 

12/16/11 : Kynning á nýjum kjarasamningi við FRV

Boðað er til kynningarfundar vegna nýs kjarasamnings VFÍ og Kjarafélags TFÍ við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV). Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, miðvikudaginn 21. desember kl. 12:00. Að lokinni kynningu og umræðum verða greidd atkvæði um samninginn.  

 

12/8/11 : Þingvellir á tilboðsverði

thingvellir_sigrun

Sigrún Helgadóttir kynnti bók sína Þingvellir - Þjóðgarður og heimsminjar á Samlokufundi VFÍ og TFÍ. Félagsmönnum býðst að kaupa bókina á sérstöku tilboðsverði. Leiðbeinandi verð er kr. 5.990.- en félagsmenn eru velkomnir til bókaútgáfunnar Opnu, Skipholti 50B, og kaupa bókina þar á kr. 4.190.- 
Bók Sigrúnar er ætluð þeim sem vilja kanna Þingvelli til hlítar, kynna sér söguna og náttúrufarið, og eyða þar unaðsstundum í gönguferðum og landkönnun. Sérstakt gönguleiðakort fylgir bókinni. Hún er búin fjölmörgum ljósmyndum og öll litprentuð.

Lesa meira
 

Fréttir eftir árum


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica