Verkfræðistofan AFL fagnaði nýverið 20 ára afmælinu og hélt hóf af því tilefni föstudaginn 16. nóvember sl. og mætti fjöldi gesta. Á sama tíma var því fagnað að síðastliðið sumar hlaut AFL gæðavottun samkvæmt ÍST EN ISO 9001:2000 staðlinum.
Lesa meira
Þann 6. desember s.l. undirrituðu formenn VFÍ, TFÍ, SV og KTFÍ nýjan samstarfssamning félaganna um sameiginlegan rekstur skrifstofu. Samningurinn tekur gildi um áramótin.
Lesa meira
Í dag, mánudaginn 3. desember, tók til starfa alþjóðlegur orkuskóli á framhaldsstigi háskóla í umsjá Orkuveitu Reykjavíkur, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík.
Lesa meira
Háskólinn í Reykjavík vekur athygli á símenntunarnámi fyrir starfandi sérfræðinga á sviði umferðar- og skipulagsmála. Einnig er í boði ný námsbraut í umferð og skipulagi sem meistaranám í byggingarverkfræði.
Lesa meira
RANNÍS, í samráði við nefnd á vegum menntamála-, heilbrigðis- og iðnaðarráðuneyta, efnir til morgunverðarfundar þriðjudaginn 4. desember n.k. um nýsköpun í tengslum við heilbrigðisþjónustuna.
Lesa meira
Kárahnjúkavirkjun verður formlega gangsett á morgun, föstudaginn 30. nóvember. Á vettvangi verða meðal annars fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra og fleiri góðir gestir.
Lesa meira
Á fulltrúaráðsfundi VFÍ þann 21. nóvember sl. var nýr samstarfssamningur félaga verkfræðinga og tæknifræðinga kynntur. Viðhorf fundarmanna voru jákvæð og fóru fram gagnlegar umræður um samninginn og þær breytingar sem verða þegar hann tekur gildi um næstu áramót.
Lesa meira
Orkuveita Reykjavíkur hefur formlega tekið í notkun nýja aflvél í Hellisheiðarvirkjun, sem mun spara fyrirtækinu 700 milljónir króna árlega í raforkukaupum fyrir almennan markað. Um er að ræða lágþrýstivél sem er sú fyrsta sinnar tegundar í nýtingu jarðhita á Íslandi.
Lesa meira
Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur boðið verkefnisstjórum 14 verkefna til samninga um stuðning. Alls bárust 39 umsóknir og sótt var um 285 milljónir króna fyrir fyrsta ár. Hægt er að sækja um verkefnisstyrki til allt að þriggja ára. Til ráðstöfunar voru 111 milljónir króna fyrir ný verkefni að þessu sinni.
Lesa meira
Mánudaginn 5. nóvember s.l. hófst raforkuframleiðsla í Kárahnjúkavirkjun með vatni úr Hálslóni. Á næstu vikum verða lokaprófanir á vélum 2-6 í Fljótsdalsstöð og þær teknar í rekstur ein af annarri. Gert er ráð fyrir að þær verði allar rekstrarhæfar áður en nóvember rennur á enda.
Lesa meira
Í tilefni alþjóðlega skipulagsdagsins (World Town Planning Day) 8. nóvember n.k. stendur Skipulagsfræðingafélag Íslands (SFFÍ) fyrir morgunfundi þar sem umræðuefnið verður “Breytt skipulag í breyttum heimi”.
Lesa meira
Stjórn TFÍ hefur ákveðið að hafa reglulega í vetur „Opið hús” þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og hin ýmsu málefni rædd. Fyrsta Opna húsið verður á vegum KTFÍ þann 22. nóvember n.k. kl. 17:00.
Lesa meira
Föstudaginn 2. nóvember næstkomandi verður árleg ráðstefna um rannsóknir Vegagerðarinnar haldin á Hótel Nordica í ráðstefnusal á fyrstu hæð.
Lesa meira
Háskólinn í Reykjavík býður upp á meistaranám í byggingarverkfræði og byggingartæknifræði. Umsækjendur skulu að lágmarki hafa lokið BSc-prófi í tæknifræði eða verkfræði frá viðurkenndum innlendum eða erlendum háskóla með viðunandi árangri.
Lesa meira
Á árshátíð Verkfræðingafélags Íslands sem haldin var nýverið var Jóhann Már Maríusson gerður að heiðursfélaga VFÍ auk þess sem fjórir verkfræðingar, þeir Gunnar Torfason, Oddur Borgar Björnsson, Steingrímur Kárason og Sigurjón Þ. Árnason voru sæmdir heiðursmerki félagsins.
Lesa meira
Er heiti ráðstefnu sem verður haldin á Grand Hótel Reykjavík 22. og 23. mars n.k. Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru í fremstu röð sérfræðinga í heiminum á sviði vega- og gatnahönnunar og niðurbroti vega. Ráðstefnan er haldin af Vegagerðinni, Norræna vegtæknisambandinu (NVF), Tækninefnd 34 og nefnd um rannsóknir og þróun á sviði vegagerðar á Norðurlöndunum (NordFoU).
Lesa meira
Í nýjasta tölublaði Verktækni (2. tbl. 2007) er grein um umhverfis- og byggingarverkfræðiskor Verkfræðideildar HÍ. Ekki reyndist unnt að birta lista fyrir meistaraverkefni frá deildinni sem fylgdi greininni. Listinn er því birtur hér.
Áætluð meistaraverkefni frá umhverfis- og byggingarverkfræðiskor árið 2007. Fremst er heiti meistaranemans, þá heiti verkefnis, leiðbeinendur og að lokum samstarfs- og/eða styrktaraðilar.
Á Samlokufundi 27. mars n.k. mun Sveinn Ólafsson kynna landsaðgang að gagnasöfnum og rafrænum tímaritum sem er upplýsingaveita fyrir Ísland. Allir sem tengjast í gegnum íslenska netveitu og eru staddir á landinu, hvort sem það eru Íslendingar eða aðrir, hafa aðgang að þeim gagnasöfnum og rafrænu tímaritum sem samningar um áskrift fyrir allt landið gilda um. Auk þess veitir landsaðgangur upplýsingar um gögnin, lista yfir tímarit í aðgangi, samsteypuleit og upplýsingar um gagnasöfn í opnum aðgangi.
Lesa meira