Fréttir

Kjarasamningar samþykktir - 12/15/08

Atkvæðagreiðslum um Kjarasamning KTFÍ og Reykjavíkurborgar annars vegar og kjarasamning SV og KTFÍ við Launanefnd sveitarfélaga hinsvegar er lokið. Samningarnir voru samþykktir. Kjarasamningarnar eru hér á vefnum.
 

Kjarasamningur KTFÍ og SV við Launanefnd sveitarfélaga - 12/11/08

Kjarasamningurinn var undirritaður 2. desember síðastliðinn og er kynning og atkvæðagreiðsla að hefjast. Samið var um 20.300 króna launahækkun, hækkun desemberuppbótar o.fl. Gildistími er til 31. ágúst 2009. Kjarasamningurinn er hér. SV_og_KTFI_vid_LN

 

KTFÍ og Reykjavíkurborg undirrita kjarasamning - 12/11/08

Kjarafélag Tæknifræðingafélags Íslands og Reykjavíkurborg skrifuðu undir kjarasamning 30. nóvember síðastliðinn. Atkvæðagreiðslu er ekki lokið. Samningurinn er í skjalinu. Kjarasamn_KTFI_og_Rborgar

 

Laust í orlofshúsum OBHM - 10/16/08

Í tilkynningu frá Orlofssjóði BHM er minnt á að oft eru orlofshús sjóðsins laus með litlum fyrirvara. Auðvelt er að skoða möguleika og bóka hús á bókunarvefnum. Einfaldast er að velja Lausir dagar. Þar er hægt að bóka orlofshús og greiða um leið með kreditkorti. Bókunarvefur.

 

Orlofssjóður - vetrarleiga - 8/13/08

Vakin er athygli á því að búið er að opna fyrir bókanir fram til 31. október 2008 á þeim kostum sem eru í boði í vetrarleigu Orlofssjóðs Bandalags háskólamanna (OBHM). Orlofssjóður KTFÍ er í samvinnu við þann sjóð. Félagar í KTFÍ sem starfa hjá opinberum og hálf opinberum fyrirtækjum, sem og á almennum markaði geta greitt til OBHM og fengið þar úthlutað sumarhúsum eða íbúðum á fjölmörgum stöðum bæði innan lands og utan.

Lesa meira
 

Kjarasamningur við ríkið kynntur - 7/2/08

Kjarafélag Tæknifræðingafélags Íslands og Stéttarfélag verkfræðinga undirrituðu kjarasamninga við ríkið 28. júní sl. Upplýsingar hafa verið sendar rafrænt til félagsmanna. Kynningarfundur verður 9. júlí kl. 15:00 í húsnæði Vegagerðarinnar, Borgartúni 5a.

Hér má nálgast kjarasamninginn.Samningur_280608

 

Grunnnámskeið í steypufræðum - 4/23/08

Steinsteypufélag Íslands heldur námskeið í steypufræðum þriðjudaginn 29. apríl kl. 8:30 til 12:30. Námskeiðið er ætlað öllum sem koma nálægt steypu; framleiðendum, hönnuðum, eftirlitsmönnum auk annarra áhugamanna um steypu. Þetta er tækifæri til að læra eða rifja upp það helsta um steypu á mjög stuttum tíma. Lesa meira
 

Kjarakönnun KTFÍ - 4/16/08

Í nýjasta tölublaði Verktækni eru birtar helstu niðurstöður Kjarakönnunar KTFÍ. Niðurstöðurnar í heild eru hér á vefnum undir stikunni Kjaramál. Lesa meira
 

Aðalfundur TFÍ - 4/2/08

Aðalfundur Tæknifræðingafélags Íslands var haldinn 31. mars sl. Bergþór Þormóðsson var endurkjörinn formaður TFÍ. Aðrir í stjórn eru: Jón Arnarson, varaformaður, Helgi Pétursson, Ari Sigfússon, Þorleifur Magnús Magnússon og Herbert Bjarnason, varamaður auk eins fulltrúa frá KTFÍ annars vegar og STFÍ hins vegar.

Lesa meira

 

Aðalfundur KTFÍ - 4/1/08

Aðalfundur Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands (KTFÍ) var haldinn 27. mars síðastliðinn. Bjarni Bentsson lét af embætti sem formaður kjarafélagsins og var Þór Sigurþórsson kosinn formaður í hans stað.

Lesa meira

 

Vinnustofa í samningatækni - 3/2/08

Endurmenntun HÍ í samstarfi við MPM meistaranámið við verkfræðideild HÍ býður upp á vinnustofu í samningatækni. Kennari er Florence Kennedy sem er einn af fremstu sérfræðingum Breta á þessu sviði. Vinnustofan er ætluð þeim sem starfa við flókna samninga, útboðs- og tilboðsgerð, fjármálaþjónustu, launaviðræður, deilustjórnun og fleira.

Lesa meira

 

Samlokufundur verður 24. janúar - 1/18/08

Sigurjón Þór Árnason, gæða og öryggisstjóri hjá TR kynnir nýútkomna bók sína "How to Achive 27001 Certification, An Example of Applied Compliance Management". Meðhöfundur hans er Keith D. Willett. Lesa meira
 

Landslagsarkitektúr og skipulagsmál - 1/11/08

Föstudaginn 18. janúar verður haldin málstofa í Ársal á Hvanneyri um landslagsarkitektúr og skipulagsmál. Málstofan hefst klukkan 13:15 og lýkur um kl. 16:30. Hún er m.a. haldin í tilefni þess að í ár eru liðin 30 ár frá stofnun Félags íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA. Lesa meira
 

Tafir á uppsetningu nýrra vefja - 1/9/08

Eins og sagt hefur verið frá, bæði á vefjum félaganna og í Verktækni, þá hefur undanfarna mánuði verið unnið að gerð nýrra vefja fyrir VFÍ og TFÍ. Lesa meira
 

Nýtt tölublað Verktækni - 1/8/08

Verktækni kom út í byrjun ársins. Meðal efnis í blaðinu er viðtal við Ebbu Þóru Hvannberg, deildarforseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Lesa meira
 

Kjarasamningur við FRV á ensku - 1/1/08

Nýr kjarasamningur KTFÍ við Félag ráðgjafarverkfræðinga hefur verið þýddur á ensku. Hægt er að nálgast ensku þýðinguna hér.
 

Fréttir eftir árum


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica