Fréttir

Ábyrgð byggingarstjóra - 10/30/09

Magnús Baldursson, lögfræðingur og framkvæmdastjóri FRV, var gestur á morgunfundi VFÍ. Hann ræddi ábyrgð byggingarstjóra í tilefni af dómi sem féll nýlega og vakið hefur nokkra athygli. Það var vel mætt á fundinn og umræður líflegar. Fyrrnefndur dómur er fróðleg lesning og Magnús benti fundarmönnum jafnframt á að kynna sér frumvarp um ný mannvirkjalög. Þar er ráðgert að auka verulega ábyrgð og kröfur til byggingarstjóra.
 

Stjórn TFÍ heimsótti Keili - 10/30/09

Stjórn TFÍ heimsótti Keili, miðstöð fræða, vísinda og atvinnulífs, nú í vikunni til að fræðast um starfsemi Keilis og þá sérstaklega Orku- og tækniskólann. Skólinn býður upp á þverfaglegt nám í orkutæknifræði og mekatróník tæknifræði (e. mechatronics). Námið fór af stað í haust og eru nemendur í tæknifræði um 30 talsins. Stjórn TFÍ telur nauðsynlegt að hafa gott samstarf við skólann til að tryggja að námið uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til þeirra sem vilja nota starfsheitið tæknifræðingur.

 

Húsfyllir á Samlokufundi - 9/25/09

Samlokuf_24_09_09Það var húsfyllir á Samlokufundi í gær, fimmtudaginn 24. september. Gestur fundarins var Teitur Þorkelsson, framkvæmdastjóri Framtíðarorku sem stóð fyrir ráðstefnunni Driving Sustainability í Reykjavík fyrir skömmu. Teitur fjallaði um framtíðarsýn um orkunotkun í samgöngum á Íslandi og fór yfir helstu niðurstöður ráðstefnunnar en þar komu m.a. fram sérfræðingar um orkulausnir í samgöngum víða að úr heiminum.
 

Forstjóri flaggskipsins - 8/20/09

Hörður Arnarson verkfræðingur hefur verið ráðinn forstjóri Landsvirkjunar. Í viðtali í Kastljósi þriðjudaginn 18. ágúst sl. sagði Hörður að ein ástæða þess að hann sóttist eftir starfinu væri sú að það væri flaggskip verkfræðimenntunar í landinu. Hörður er 46 ára gamall og lauk prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands1986 og doktorsprófi frá Danmarks Tekniske Universitet í Kaupmannahöfn 1990. Hann starfaði hjá Marel frá 1985 og þar af sem forstjóri fyrirtækisins í tíu ár frá 1999 til 2009. Frá því í maí síðastliðnum hefur Hörður gegnt starfi forstjóra Sjóvár og leitt endurskipulagningu félagsins en gert er ráð fyrir að því verkefni ljúki fyrir áramót.

 

Starf í Svíþjóð - 8/10/09

Sænskt bygginga-og verktakafyrirtæki leitar eftir byggingarverkfræðingi eða byggingartæknifræðingi sem hefur reynslu og þekkingu af verkefna- og byggingastjórnun (stærri verkefni, > 1500 milj. ISK). Óskað er eftir starfsmanni með að minnsta kosti átta ára starfsreynslu. Viðkomandi þarf að geta talað og skrifað sænsku. Nánari upplýsingar. Senda má fyrirspurnir til skrifstofu félaganna Vinsamlega merkið fyrirspurnir í tölvupósti í efnislínu (subject): Starf í Svíþjóð.

 

Kjarakönnun KTFÍ 2009 - 7/3/09

Kjarakönnun Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands 2009 er komin út og er birt hér á vefnum.
 

Breytingar á starfsreglum sjóða - 7/2/09

Gerðar hafa verið breytingar á starfsreglum Sjúkrasjóðs KTFÍ og starfsreglum Fjölskyldu- og styrktarsjóðs KTFÍ. Sjúkrasjóðurinn greiðir nú líkamsræktarstyrk að upphæð kr. 18 þúsund á ári og dagpeninga vegna fæðingarorlofs. Fjölskyldu- og styrktarsjóðurinn greiðir nú fæðingarstyrk. Greidd er 170 þúsund króna eingreiðsla til sjóðfélaga í fullu starfi.
 

Viðræðum við FRV frestað - 6/16/09

Í ljósi óvissu á almennum og opinberum vinnumarkaði hefur frekari samningaviðræðum SV og KTFÍ við FRV verið frestað til ágústloka.
 

Húsin í bænum - ertu með hugmynd? - 6/16/09

Menningarnótt í Reykjavík verður haldin laugardaginn 22. ágúst næstkomandi.
Þema Menningarnætur að þessu sinni er „Húsin í bænum“. Þar sem þetta tengist sérsviði verkfræðinga og tæknifræðinga er kallað eftir hugmyndum þeirra.

Lesa meira

 

Húsin í bænum - ertu með hugmynd? - 6/16/09

Menningarnótt í Reykjavík verður haldin laugardaginn 22. ágúst næstkomandi.
Þema Menningarnætur að þessu sinni er „Húsin í bænum“. Þar sem þetta tengist sérsviði verkfræðinga og tæknifræðinga er kallað eftir hugmyndum þeirra.

Lesa meira
 

Viðræðum um stöðugleikasáttmála haldið áfram - 6/5/09

Á fundi fulltrúa heildarsamtaka launamanna, Samtaka atvinnulífsins, ríkisins og sveitarfélaga í morgun var ákveðið að halda áfram viðræðum um gerð stöðugleikasáttmála og kjarasamninga.  

Lesa meira
 

Málstofa NVF um brýr framtíðarinnar - 6/5/09

Dagana 31. ágúst og 1.september verður málstofa í Gautaborg í Svíþjóð á vegum Norræna vegasambandsins (NVF) um brýr og brúarhönnuði framtíðarinnar. Nánari upplýsingar.

 

Dagpeningar innanlands - 6/2/09

Breytingar hafa orðið á dagpeningum ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands (auglýsing nr. 2/2009).
Nánari upplýsingar.

 

Fundir á sviði mannvirkjagerðar - 5/19/09

Föstudaginn 22. maí verður fyrirlestur á vegum BIM Ísland. Yfirskrift hans er: Hvað getur BIM ? Fundurinn verður haldinn í VINDHEIMUM Höfðatorgi, 7. hæð, Borgartúni 12-14, kl. 15-17. Upplýsingar. Mánudaginn 8. júní verður opinn fundur um árangursvísa og árangursmat í mannvirkjagerð. Fundurinn verður á Grand Hótel og hefst kl. 13:15. Upplýsingar.

 

Störf í Noregi - 5/19/09

Vinnumiðlun í Bergen óskar eftir að komast í samband við íslenskan véltæknifræðing sem hefur reynslu af spilkerfum og spilframleiðslu fyrir skip. Starfsheitið er: Senior Winch Construction Manager. Íslendingur sem dvelur í Noregi geftur haft milligöngu í málinu. Hægt er að hafa samband með tölvupósti en einnig má hringja í síma 0047 9020 6548. Þá var skrifstofa TFÍ beðin um að koma því á framfæri að Í Lunde er laust starf kennara á rafmagnssviði. Nánari upplýsingar.

 

Orlofsuppbót ríkisstarfsmanna - 5/13/09

Fyrir liggur ákvörðun fjármálaráðherra að starfsmenn ríkisins sem fengið hafa orlofsuppbót skv. kjarasamningum fái orlofsuppbót árið 2009 að upphæð kr. 25.200 eins aðrir launþegar. Kemur þessi ákvörðun til vegna þess að kjarasamningar við ríkisstarfsmenn eru flestir lausir og hefur á þeim vettvangi ekki enn verið samið um orlofsuppbót ársins 2009. Þetta á við um verkfræðinga og tæknifræðinga eins og aðrar stéttir sem starfa hjá ríkinu.

 

Viðburðir á næstunni - 4/30/09

Hér eru upplýsingar um viðburði sem félögin voru beðin um að koma á framfæri við félagsmenn sína. Vistvænar byggingar. - Steypuviðgerðir. - Revit BIM og M&E dagur. - Erlend útboð.

 

Upplýsingar um orlofsuppbót - 4/28/09

Hinn 1. júní ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl næst á undan fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Nánari upplýsingar.
 

Störf í boði í Noregi - 4/22/09

Tvö fyrirtæki í Noregi eru að auglýsa eftir fólki.
Annars vegar er það BKK sem er staðsett í Bergen og hins vegar Agder Energi sem er í Kristjánssandi. Nánari upplýsingar: BKK og Agder Energi.

 

Brunavarnaþing 2009 - 4/15/09

Brunavarnaþing 2009 verður haldið föstudaginn 17. apríl. Yfirskrift þingsins er: Virkjanir og stóriðja. Þingið verður í bíósal Hótel Loftleiða og stendur frá kl. 8:30 – 12:00. Aðalfundur BTÍ verður haldinn í kjölfarið.

 

Að móta byggð... með áherslu á lífsgæði - 4/15/09

Skipulagsstofnun stendur fyrir ráðstefnunni: Að móta byggð... með áherslu á lífsgæði. Ráðstefnan verður fimmtudaginn 30. apríl. Nánari upplýsingar.

 

Munið að svara kjarakönnuninni - 4/6/09

Frestur til að svara Kjarakönnun KTFÍ er til 18. apríl nk. Vinsamlegast ljúkið við að svara við fyrstu hentugleika.

 

Aðalfundur TFÍ - 3/31/09

Aðalfundur Tæknifræðingafélags Íslands var haldinn 30. mars. Engar lagabreytingar lágu fyrir og tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjöld var samþykkt. Í stjórn voru kosin: Helgi Pétursson, Benedikt Halldór Halldórsson og Anna Elín Jóhannsdóttir. Nánar verður sagt frá fundinum í næsta tölublaði Verktækni. Ársskýrsla TFÍ starfsárið 2008-2009.
 

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins - 3/2/09

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins árið 2009 verður haldinn þriðjudaginn 10. mars 2009 á Grand hótel Reykjavík kl. 17:15.

 

Fréttir eftir árum


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica