Á morgun, fimmtudaginn 3. maí, verður tilkynnt um úrslit í samkeppni um um göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaárósa. Þrjár tillögur voru valdar á annað þrep samkeppninnar og verða þær til sýnis í Ráðhúsinu 7. - 14. maí.
Lesa meiraAðalfundur Tæknifræðingafélags Íslands var haldinn í gær, 28. mars. Að þessu sinni var sjálfkjörið í stjórn félagsins. Önundur Jónasson var kosinn formaður. Auk hans voru kosnir Helgi Páll Einarsson, Guðjón Hreiðar Árnason og Þorleifur Magnús Magnússon, varamaður. Auk þeirra eru í stjórn TFÍ Anna Elín Jóhannsdóttir og Benedikt Halldór Halldórsson, auk fulltrúa frá KTFÍ og STFÍ. Lagabreytingar voru samþykktar samhljóða. Ársskýrsla TFÍ starfsárið 2011-12 með ársreikningum félagsins og sjóða í vörslu þess er hér. Á myndinni eru Bergþór Þormóðsson fyrrverandi formaður og Önundur Jónasson, nýkjörinn formaður TFÍ.
Aðalfundur Tæknifræðingafélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 28. mars í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Sama dag verða aðalfundir KTFÍ og STFÍ og hefjast þeir kl. 17. Að þeim loknum verða bornar fram veitingar og aðalfundur TFÍ mun hefjast kl. 19. Á aðalfundinum mun stjórn TFÍ leggja fram lagabreytingartillögur og er hægt að nálgast þær hér.
Lesa meiraNýr kjarasamningur KTFÍ við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV) hefur verið samþykktur af báðum aðilum. Samningurinn hefur því tekið gildi. Nánari upplýsingar um samninginn eru hér.