Fréttir
Fimm verkfræðingar heiðraðir
Jóhann Már Maríusson byggingarverkfræðingur á að baki farsælan starfsferil á sviði raforkumála. Hann var staðarverkfræðingur Harza Engineering Co. Int. við virkjun Þjórsár við Búrfell 1966-70 og hafði leiðandi stöðu við uppbyggingu orkuvera og flutningsvirkja, fyrst sem yfirverkfræðingur Landsvirkjunar frá 1977-83 og síðar sem aðstoðarforstjóri fyrirtækisins. Jóhann hefur haldið á lofti, stutt og eflt íslenska verkfræðiþekkingu. Hann var í starfi sínu ötull talsmaður þess að efla innlenda ráðgjafarþjónustu og gera kröfur um vinnubrögð sem væru fullgild á alþjóðamælikvarða. Með þessu hefur Jóhann ekki einungis stuðlað að því að færa verkfræðistörf á Íslandi í hendur Íslendinga heldur einnig lagt grunn að útrás þekkingar á sviði verkfræðinnar. Jóhann hefur í gengum tíðina tekið virkan þátt í starfi VFÍ og var formaður félagsins 1994-1995.
Gunnar Torfason lauk prófi í byggingarverkfræði TH í München árið 1959. Gunnar hóf starfsferil sinn í Þýskalandi en fluttist til Íslands 1961. Lengst af rak Gunnar eigin verkfræðistofu en árin 1966 til 69 var hann framkvæmdastjóri Framkvæmdanefndar byggingaráætlunar sem reisti meðal annars Breiðholt I. Gunnar hefur verið frumkvöðull í að móta matsstörf hér á landi, undirbúið og stjórnað mörgum stórum verkfræðilegum verkefnum, verið fyrirlesari á námskeiðum skrifað greinar í blöð um efni er varðar verkfræði og er einn af frumkvöðlum og stofnendum Verkefnastjórnunarfélags Íslands. Gunnar hefur gegnt formannsstörfum í Verkefnastjórnunarfélaginu, Steinsteypufélaginu og Matsmannafélaginu. Gunnar hefur verið virkur félagi í VFÍ og sinnt þar ýmsum trúnaðarstörfum. Auk þessa hefur Gunnar gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfuim innan íþróttahreyfingarinnar. Vandvirkni, ósérhlífni og faglegur metnaður eru einkennandi fyrir verkfræðistörf hans.
Oddur Borgar Björnsson lauk prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1974 og doktorsprófi á sviði straumfræði frá Heriot-Watt University Edinborg árið 1978. Oddur hefur starfað hjá verkfræðistofunni Fjarhitun frá árinu 1978 og sem yfirverkfræðingur frá árinu 1995. Hann var stundakennari og aðjúnkt við Verkfræðideild Háskóla Íslands frá 1978 – 1986 og kenndi straumfræði í vélaverkfræðiskor og varmafræði, varmaflutningsfræði og straumfræði ásamt hönnun varmaorkuvera við rafmagnsverkfræðiskor. Oddur hefur verið frumkvöðull í hönnun lagna- og loftræstikerfa ásamt því að vera í fremstu röð meðal verkfræðinga í margþættri nýtingu jarðhita. Hann hefur verið verkefnisstjóri yfir flóknum lagna- og loftræstikerfum. Oddur hefur ritað fjölda tæknigreina og samið kennsluefni á sviði vélaverkfræði. Oddur hefur verið virkur í félags- og trúnaðarstörfum og var hann m.a. formaður VFÍ 1989-1990.
Sigurjón Þ. Árnason lauk prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1992. Hann stundaði framahaldsnám í Bandaríkjunum og Japan, þaðan sem hann lauk MBA námi og einnig í Þýskalandi þar sem hann lagði stund á nám í iðnaðarverkfræði. Að loknu framhaldsnámi 1995 hóf hann störf við Búnaðarbanka íslands og var framkvæmdastjóri rekstrarsviðs þegar hann var ráðinn til Landsbanka Íslands sem bankastjóri árið 2003. Sigurjón hefur náð einstaklega góðum árangri í störfum sínum og hann á drjúgan þátt í vexti og útrás íslenskra fjármálafyrirtækja á undanförnum árum. Bakgrunnur Sigurjóns sem verkfræðingur hefur komið að góðum notum við alþjóðlega uppbyggingu á sviði fjármála. Afburðafærni hans kemur fram við að greina viðfangsefni hratt og örugglega, taka ákvarðanir samkvæmt því, fela mönnum verkefni og ábyrgð með skýrum hætti og virkja þá til að ná sameiginlegum markmiðum.
Steingrímur Þ. Kárason lauk prófi í vélaverkfræði við Háskóla Íslands 1991, meistaraprófi í vélaverkfræði frá Massachusetts Institute of Technology (MIT) 1993 og doktorsprófi frá sama skóla 1997. Steingrímur réðst til starfa hjá Kaupþingi árið 1997 og hefur verið yfirmaður áhættustýringar frá stofnun sviðsins árið 1998. Frá 2005 hefur hann gegnt stöðu framkvæmdastjóra áhættustýringar fyrir samstæðu Kaupþings. Steingrímur hefur yfirgripsmikla þekkingu á áhættustýringu, fjármálagreiningum og bankastarfsemi. Kunnáttuna hefur hann nýtt á farsælan hátt við stýringu áhættu og val á fjárfestingum Kaupþings. Hann er einn af lykilmönnum í útrás bankans á undanförnum árum sem er einstök á alþjóðlegum mælikvarða.
