Fréttir

Atvinnuleysistölur í nóvember

12/14/09

Í hópi verkfræðinga voru 123 karlar og 32 konur án atvinnu. Í röðum tæknifræðinga var þetta hlutfall 98 karlar og 14 konur. Verkfræðingar án atvinnu á höfuðborgarsvæðinu voru 137 og 18 á landsbyggðinni. Hvað tæknifræðingana varðar þá voru 97 tæknifræðingar á höfuðborgarsvæðinu án atvinnu í nóvember og 15 á landsbyggðinni.

Í töflunni má sjá að atvinnuleysi hjá verkfræðingum og tæknifræðingum jókst jafnt og þétt frá október 2008 til maímánaðar 2009. Síðan þá hafa atvinnuleysistölur farið lækkandi. Rétt er að geta þess skráning Vinnumálastofnunar virðist ekki óskeikul hvað varðar skráningu starfsstétta. Leikur grunur á að þar sé þó nokkur fjöldi erlendra starfsmanna sem ekki eru með fullgilt verkfræði- eða tæknifræðipróf. Einnig ber að geta þess að í hópi verkfræðinga eru bæði einstaklingar með BS- og MS-próf en skilyrði fyrir notkun starfsheitisins verkfræðingur er að hafa lokið MS-prófi.

Mánuður verkfræði  tæknifræði
okt. ´08  22  15
nóv. ´08   104  27
des. ´08  119  52
jan. ´09 141 74
feb. ´09 183 104
mars ´09 196 111
apríl ´09 216 123
maí ´09 220 124
júní ´09 200 111
júlí ´09 188 106
ág. ´09 188 101
sept. ´09 169 97
okt. ´09 165 111
nóv ´09 155 112




Senda grein

Fréttir eftir árum


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica