Fréttir
Tilboð á Flora Islandica

Bókin er mikið og glæsilegt listaverk, því sem næst í stærðinni A3 og yfir 500 blaðsíður. Bókin er því afar vegleg og kemur í línklæddri viðaröskju. Hún var einungis prentuð í 500 eintökum og hvert eintak er tölusett og áritað af Eggerti. Nú fer fáanlegum eintökum fækkandi og því fagnaðarefni að félaögin geti boðið félagsmönnum sínum þennan afslátt.
Þeir sem hafa áhuga á bókinni er bent á að snúa sér til útgefandans, Crymogeu, með því að senda tölvupóst eða hringja í síma 511 0910 eða 821 5588. Bókin kostar kr. 95.000 en félagsmönnum stendur hún til boða á kr. 85.000 Hægt er að dreifa greiðslum í tíu mánuði en þá kostar bókin kr. 90.000.-
