Fréttir

Námskeið um viðskiptasiðfræði

Hvernig á að vega og meta þau álitamál sem upp koma í viðskiptum og rekstri?

3.2.2010

Farið er ofan í helstu kenningar viðskiptasiðfræðinnar og fjallað um hvernig hægt er að hagnýta þær í rekstri og stjórnun.Námskeiðinu er ætlað að sýna fram á mikilvægi þess að fyrirtæki og starfsmenn þeirra hafi siðferðileg sjónarmið í huga, jafnt í samskiptum við samstarfsfólk og þá viðskiptavini sem fyrirtækið byggir grundvöll sinn á. Í því skyni er notast við þekkt dæmi úr heimi viðskiptalífsins, jafnt hér heima og erlendis frá.

Fyrirlesarinn, Stefán Einar Stefánsson, lauk BA prófi í guðfræði árið 2006 og Cand theol. prófi og MA í viðskiptasiðfræði frá HÍ 2008. Stefán hefur starfað með fjölda fyrirtækja og stofnana á sviði siðfræði frá 2008. Hann hefur einnig haldið fjöld erinda og námskeiða um efnið.

 Námskeiðið verður haldið í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 12-13. Boðið verður upp á samlokur og drykki.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Fréttir eftir árum




þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.