Fréttir
Bjarki er nýr stjórnarformaður Lífsverk
Á sjóðfélagafundinum 21. maí mun fráfarandi formaður Sigurður Áss Grétarsson fjalla um afskriftir og eignasafn sjóðsins og aðgerðir sem gripið var til í tengslum við hrunið. Nýr formaður og framkvæmdastjóri munu síðangrein fyrir tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins, endurskoðuðum eigna- og áhættustýringarreglum og framtíðarstefnu nýrrar stjórnar.
Bjarki A. Brynjarsson er fæddur 29. Janúar 1966. Hann lauk Cand. Scient prófi í rafmagnsverkfræði við Háskóla Íslands 1990 og Ph.D. námi í verkfræði við Norwegian Institute of Technology árið 1995. Bjarki er löggiltur verðbréfamiðlari. Hann starfar nú sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar hjá Askar Capital en áður hefur hann m.a. verið forseti Tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, framkvæmdastjóri hjá Nýherja og Klaki og verið forstöðumaður hjá Kaupþingi.
