Fréttir
Aðalfundur Almenna lífeyrissjóðsins
Fundurinn samþykkti ályktun um að beina því til stjórnar að óska eftir upplýsingum frá skilanefnd Glitnis um mótaðila á framvirkum gjaldmiðlavarnarsamningum.
Fundurinn samþykkti tvær breytingar á samþykktum séreignarsjóðs samkvæmt tillögu stjórnar. Beiðnir um flutning milli ávöxtunarleiða verða framvegis afgreiddar mánaðarlega eða í lok næsta mánaðar eftir að beiðni berst. Beiðnir um eingreiðslur úr séreignarsjóði verða framvegis afgreiddar um mánaðarmót eða um miðjan mánuð.
Í stjórn sjóðsins eru eingöngu sjóðfélagar sem kosnir eru af sjóðfélögum. Á ársfundinum voru Oddgeir Ágúst Ottesen og Oddur Ingimarsson kosnir í stjórn til þriggja ára.
