Fréttir
Eyjafjallajökull og flugrekstur
Ráðstefna Keilis 15. - 16. september 2010
Ráðstefnan verður haldin á gamla varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll sem nú heitir Ásbrú. Til hennar hefur verið boðið vísindamönnum, forráðamönnum í flugrekstri og fulltrúum opinberra aðila.
Leitast verður við að svara spurningum eins og hvað gerðist í Eyjafjallajökli, af hverju lokaðist lofthelgi Evrópu, hvaða reglum var fylgt og hvaða lærdóm má draga af þessum vanda? Einnig verður fjallað um hvort og hvernig má draga úr umfangi áhrifa öskudreifingar á flugumferð og hverjir eigi að taka ákvarðanir um hvernig minnka má áhættu vegna hennar.
Meðal fyrirlesara er Eric Moody, fyrrverandi flugstjóri hjá British Airways, en hann var við stjórnvölinn þegar breiðþota hans lenti í öskufalli við Jövu 24. júní 1982 en þá drapst á öllum fjórum hreyflum þotunnar. Flugmönnum tókst að koma þeim í gang á ný og lenti vélin heilu og höldnu og mun flugstjórinn skýra frá reynslu sinni í þessu flugi.
Helstu innlendu samstarfsaðilar Keilis um skipulag ráðstefnunnar eru samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, iðnaðarráðuneytið, utanríkisráðuneytið, Flugmálastjórn Íslands, flugfélögin Atlanta, Flugleiðir og Flugfélag Íslands, Veðurstofa Íslands, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík , Félag íslenskra atvinnuflugmanna svo og Verkfræðingafélag Íslands og Tæknifræðingafélag Íslands. Þá hefur verið leitað samstarfs við ýmsa erlenda aðila svo sem samtök flugfélaga, flugmannafélaga, evrópskra og alþjóðlegra stofnana á sviði flugsins og vísindastofnana. Forseti Íslands; Ólafur Ragnar Grímsson, er verndari ráðstefnunnar.
.
