INNTÖKUREGLUR TFÍ
1. grein
Sá, sem áhuga hefur á að gerast félagsmaður í Tæknifræðingafélagi Íslands (TFÍ), snýr sér til skrifstofu félagsins og aflar sér þar upplýsinga um kröfur þær, sem félagið gerir til nýrra félagsmanna.
TFÍ skal gera væntanlegum umsækjanda ljóst, að viðkomandi beri sú skylda að veita TFÍ hver þau gögn, sem það telur nauðsynleg til staðfestingar á menntun umskæjanda. Sönnunarbyrði þar að lútandi hvílir öll á umsækjanda.
2. grein
Telji viðkomandi sig uppfylla kröfur félagsins til nýrra félaga, fyllir umsækjandi út sérstakt umsóknareyðublað og leggur fram gögn með umsókn sinni. Gögn þessi skulu veita sem gleggstar upplýsingar um þau atriði, sem við eiga sbr. 5. grein hér á eftir. Frekari gagna kann að verða óskað.
3. grein
Framkvæmdastjóri félagsins sendir menntamálanefnd TFÍ til umsagnar allar umsóknir um inngöngu í félagið.
4. grein
Menntunarnefnd leggur hlutlaust mat á umsóknir þær, sem henni berast. Hafi umsækjandi bein eða óbein samskipti við nefndarmenn varðandi umsókn sína meðan á afgreiðslu hennar stendur, fyrirgerir umsækjandi hlutleysi nefndarinnar.
5. grein
Mat menntunarnefndar TFÍ byggist á kröfum félagsins til menntunar umsækjenda.
Menntunarnefnd skal mæla með inngöngu umsækjanda í félagið, ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:
- Umsækjandi hefur lokið námi með prófgráðu í tæknifræði við menntastofnun sem menntunarnefnd telur færa um að veita fullnægjandi menntun á viðkomandi sérsviði.
-
Umsækjandi uppfyllir skilyrði til að fá leyfi ráðherra til að kalla sig tæknifræðing sbr. “Mat TFÍ á umsóknum um tæknifræðingstitil.”
Eftirtaldir námstitlar teljast uppfylla framangreind skilyrði, enda er námskröfum fullnægt samanber FEANI-INDEX (European Federation of National Engineering Associations) eða ABET-skrá (Accreditation Board for Engineering and Technology, Ing). Athugið. Ekki sjálfgefið að ingeniör titill á prófskírteini veiti réttindi hér á landi til starfsheitisins tæknifræðingur eða inngöngu í TFÍ.
Land Námstitill Athugasemdir Ísland Lokapróf í Tæknifræði Danmörk Diplomingeniör / Teknikumingeniör Ath. Ekki sjálfgefið að ingeniör titill á prófskírteini veiti réttindi hér á landi til starfsheitis eða inngöngu í TFÍ. Finnland Insinööri Noregur Ingeniör Belgía Ingénieur Industiel Bretland B.Bc.(Honours) Holland Ingenieur (Technical Ingenieur) Írland B.Sc (Honours) Spánn Ingeniero Técnico Þýskaland Diplom Ingenieur / Ing .Grad. Prófgráða skal vera frá Fach-hochschule (Dipl. Ing. (FH)) eða (Ing.grad) Bandaríkin Engeneering Technology Prófgráða B.Sc. in Technology Engeneering. Námsbraut skal hafa hlotið viðurkenninngu ABET.
6. grein
Menntunarnefnd TFÍ sendir stjórn félagsins umsögn sína.
7. grein
Ef umsögn menntunarnefndar er jákvæð ber stjórn TFÍ að mæla með því við ráðherra, að umsækjandi fái rétt til að kalla sig tæknifræðing.
Ef umsögn menntunarnefndar er neikvæð, ber stjórn að mæla gegn því, að umsækjandi fái leyfi ráðherra til að kalla sig tæknifræðing nema í algjörum undantekningartilvikum, eins og ef viðkomandi getur ekki aflað tilskilinna gagna vegna styrjalda eða af stjórnmálalegum ástæðum. Í slíkum tilfellum þarf stjórn að samþykkja meðmæli til ráðherra samhljóða.
8. grein
Framkvæmdastjóri TFÍ tilkynnir umsækjanda og/eða iðnaðarráðuneyti hverja afgreiðslu umsóknin hefur hlotið.
9. grein
Reglur þessar hlutu staðfestingu aðalstjórnar TFÍ þann 7. febrúar 1996.
