Félagsaðild að TFÍ
Í félagslögum TFÍ er að finna eftirfarandi ákvæði um félagsaðild
Félagar
4. grein
Almennir félagar geta þeir orðið sem lokið hafa burtfararprófi frá æðri tæknifræðiskólum viðurkenndum af þeim alþjóðasamtökum sem T.F.Í. er aðili að, nú FEANI.
5. grein
Stjórn félagsins getur útnefnt sérhvern karl eða konu heiðursfélaga sem hún telur hafa leyst hafa af hendi mikilvæg störf á sviði tæknifræði eða framkvæmda. Til útnefningar heiðursfélaga þarf samhljóða atkvæði allra stjórnarmanna.
Aukaaðild
6. grein
Tæknifræðinemar sem lokið hafa a.m.k. einu námsári í tæknifræði geta orðið aðilar að T.F.Í. með takmörkuðum réttindum og skyldum. Aukaaðilar hafa tillögurétt á félagsfundum en hafa ekki atkvæðisrétt. Aukaaðili getur ekki setið í stjórn T.F.Í.
Inntaka félaga
7. grein
Þeir sem óska eftir því að gerast félagar í T.F.Í. skulu senda skrifstofu félagsins umsókn sína á þar til gerðu eyðublaði ásamt afriti prófskírteinis, æviágripi og ljósmynd.
8. grein
Allar umsóknir um fulla aðild að félaginu skulu koma til umsagnar menntunarnefndar.Að fenginni umsögn menntunarnefndar tekur stjórn afstöðu til umsókna og séu þær samþykktar samhljóða er inntaka umsækjanda þar með endanlega samþykkt. Umsóknir um aukaaðild eru afgreiddar á stjórnarfundi. Sé ágreiningur í stjórn um afgreiðslu umsóknar, tekur félagsfundur endanlega ákvörðun.
