Leiðbeiningar

Leiðbeiningar MTFÍ

Varðandi inntökubeiðni í TFÍ og/eða umsókn um starfsheiti.

  1. Inntökubeiðni í MTFÍ og/eða umsókn um starfsheiti.
    a)
    Umsækjandi með próf og prófgráðu sem uppfyllir skilyrði til að kalla sig tæknifræðing samanber reglur þar um, þarf að senda inn með umsókn staðfest prófskírteini frá viðkomandi skóla. TFÍ (Iðnaðarráðuneyti þar sem það á við) tekur ljósrit af frumskjölum þar sem fram þurfa að koma upplýsingar um próf og prófgráður.


    b) Aðrir umsækjendur:
    Umsókn fylgi lýsing á námi, þ.e. vægi þess og skilgreiningar á einingum, hvaða nám um er að ræða og hvort viðkomandi hefur staðist prófið eða fallið. Það þarf að koma skýrt fram hvaða ár nám hefst og hvenær því lýkur.

    c) Æskilegt er að upplýsingar um undanfara náms fylgi þ.e. stúdentspróf eða annað sambærilegt próf og þá hvaða ár og hvaðan.

  2. Mynd þarf að fylgja umsókn ef um inntökubeiðni í félagið er að ræða.
  3. Athugið
    Umsóknir verða ekki teknar til afgreiðslu fyrr en upplýsingar liggja fyrir sbr. hér að ofan.
    Þetta á við um alla umsækjendur.
  4. Skrifstofa TFÍ tekur ljósrit af frumgögnum (prófskírteinum).
    Skrá þarf dagsetningu og hver tekur ljósrit.
  5. Umsækjendum er bent á að kynna sér vel inntökureglur og félagslög TFÍ.
    Hvoru tveggja er til á skrifstofu félagsins.
  6. Allar umsóknir um starfsheiti og inngöngu í TFÍ fara til afgreiðslu hjá Menntunarnefnd TFÍ.
    Sama máli gegnir um fyrirspurnir varðandi námsmat.
  7. Fyrirspurnum um umsóknir og öðrum daglegum erindum svarar skrifstofa TFÍ.
    Ef erindið er brýnt má leita til formanns Menntunarnefndar TFÍ, sjá þó 4. grein í inntökureglum TFÍ.
  8. Menntunarnefnd fundar reglulega fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, nema júlímánuð, en þá er sumarfrí.
    Erindi þurfa að hafa borist fyrir kl. 16:00 næsta fimmtudag á undan.
  9. Menntunarnefnd gengur sjálf frá erindum sem henni berast bæði frá framkvæmdastjórn og öðrum.
    Fundargerðir nefndarinnar eru sendar framkvæmdastjórn TFÍ.
    Ef aðstoðar skrifstofu er óskað, þarf að tilkynna það sérstaklega.

Senda grein


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica