Mat á umsóknum

Mat TFÍ á umsóknum um tæknifræðingstitil

1. grein

Sá, sem óskar leyfis ráðherra til að kalla sig tæknifræðing skv. lögum nr. 8/1996, snýr sér til skrifstofu félagsins eða til Iðnaðarráðuneytisins og aflar sér þar upplýsinga um kröfur þær, sem TFÍ gerir til menntunar tæknifræðinga.
Væntanlegum umsækjanda skal gert ljóst, að viðkomandi beri sú skylda að veita TFÍ hver þau gögn, sem það telur nauðsynleg til staðfestingar á menntun umskæjanda. Sönnunarbyrði þar að lútandi hvílir öll á umsækjanda.

2. grein

Telji viðkomandi sig uppfylla menntunarkröfur TFÍ til tæknifræðingstitils, fyllir umsækjandi út sérstakt umsóknareyðublað og leggur fram gögn með umsókn sinni. Gögn þessi skulu veita sem gleggstar upplýsingar um þau atriði, sem við eiga sbr. 5. grein hér á eftir. Frekari gagna kann að verða óskað.

3. grein

Framkvæmdastjóri félagsins sendir menntunarnefnd TFÍ til umsagnar allar umsóknir um tæknifræðingstitilinn.

4. grein

Menntunarnefnd leggur hlutlaust mat á umsóknir þær, sem henni berast. Hafi umsækjandi bein eða óbein samskipti við nefndarmenn varðandi umsókn sína meðan á afgreiðslu hennar stendur, fyrirgerir umsækjandi hlutleysi nefndarinnar.

5. grein

Mat menntunarnefndar TFÍ byggist á kröfum félagsins til menntunar umsæjenda.
Menntunarnefnd skal mæla með því við stjórn TFÍ að umsækjandi fái leyfi ráðherra til að kalla sig tæknifræðing ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:

Lokið er með prófgráðu námi, sem hefur verið stundað í tæknifræði við menntastofnun sem menntunarnefnd telur færan (færa) um að veita fullnægjandi menntun á viðkomandi sérsviði. Prófgráðan skal að námslengd og samsetningu náms uppfylla lágmarkskröfur TFÍ (hver eining svarar til einnar viku í fulllu námi):

a)

Undirstöðugreinar tæknifræðinnar
21e  (42 ECTS)
b)
Tæknifræðilegar undirstöðugreinar
20e  (40 ECTS)
c)
Tæknifræðigreinar
41e  (82 ECTS)

d)

Námsgreinar að frjálsu vali, sem talist geta til tæknifræði náms

25e  (50 ECTS)

Lágmark

107e (214 ECTS)

Eftirtaldir námstitlar teljast uppfylla framangreind skilyrði, enda er námskröfum fullnægt samanber FEANI-INDEX (European Federation of National Engineering Associations) eða ABET-skrá (Accreditation Board for Engineering and Technology, Ing):

Land Námstitill Athugasemdir
Ísland Lokapróf í Tæknifræði  
Danmörk Diplomingeniör / Teknikumingeniör  
Finnland Insinööri  
Noregur  Ingeniör  
Belgía Ingénieur Industiel  
Bretland B.Bc.(Honours)  
Holland Ingenieur (Technical Ingenieur)  
Írland B.Sc (Honours)  
Spánn Ingeniero Técnico  
Þýskaland Diplom Ingenieur / Ing .Grad. Prófgráða skal vera frá Fach-hochschule (Dipl. Ing. (FH)) eða (Ing.grad)
Bandaríkin Engeneering Technology Prófgráða B.Sc. in Technology Engeneering. Námsbraut skal hafa hlotið viðurkenninngu ABET.
     

6. grein

Menntunarnefnd TFÍ sendir framkvæmdastjóra félagsins umsögn sína.

7. grein

Ef umsögn Menntunarnefndar er jákvæð og umsækjandi er íslenskur ríkisborgari, ber stjórn TFÍ að mæla með því við ráðherra, að umsækjandi fái rétt til að kalla sig tæknifræðing.
Ef umsögn Menntunarnefndar er neikvæð, ber stjórn að mæla gegn því, að umsækjandi fái leyfi ráðherra til að kalla sig tæknifræðing nema í algjörum undantekningartilvikum, eins og ef viðkomandi getur ekki aflað tilskilinna gagna vegna styrjalda eða af stjórnmálalegum ástæðum. Í slíkum tilfellum þarf stjórn að samþykkja meðmæli til ráðherra samhljóða.

8. grein

Framkvæmdastjóri TFÍ tilkynnir umsækjanda og/eða iðnaðarráðuneyti hverja afgreiðslu umsóknin hefur hlotið.

9. grein

Reglur þessar hlutu staðfestingu aðalfundar TFÍ þann 1.mars 1995.

Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica