Lög og auglýsingar

STARFSHEITIÐ

Samkvæmt lögum nr. 8 frá 11. mars 1996 hafa þeir einir rétt til að nota starfsheitið tæknifræðingur sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra, enda hafi þeir lokið námi frá fullgildum tæknifræðiskóla. Menntunarnefnd TFÍ setur reglur í samvinnu við Iðnaðarráðuneytið, sem auglýsir hvaða nám telst leiða til fullnaðarprófs í tæknifræði.

Lög nr. 8 frá 11. mars 1996

Um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni og hönnunargreinum segir svo í fyrstu og annarri grein:

1. gr.

Lög þessi taka til eftirtalinna starfsheita:
1. verkfræðinga,
2. tæknifræðinga,
3. arkitekta (húsameistara),
4. byggingafræðinga,
5. húsgagna- og innanhússhönnuða,
6. iðnfræðinga,
7. landslagshönnuða og
8. skipulagsfræðinga.

2. gr.

Rétt til að nota starfsheiti þau sem lög þessi taka til eða orð sem fela í sér þau heiti hafa þeir menn einir sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra, sbr. 3. gr., eða þeir sem fengið hafa staðfestingu ráðherra á leyfi til að bera samsvarandi starfsheiti sem veitt hefur verið í ríki sem er aðili að samningi um Evrópska efnahagssvæðið, sbr.

3. gr.

Engum má veita leyfi það er um ræðir í 2. gr. nema hann hafi lokið fullnaðarprófi í viðkomandi starfsgrein.
Fagfélög þeirra starfsgreina sem lög þessi taka til skulu setja sér reglur1) um hvaða nám teljist leiða til fullnaðarprófs í viðkomandi starfsgrein. Þær reglur skulu taka gildi þegar þær hafa verið staðfestar af ráðherra og birtar í Stjórnartíðindum. Rétt til að öðlast leyfi hafa þeir sem lokið hafa námi samkvæmt greindum reglum að mati ráðherra að fenginni umsögn viðkomandi fagfélags.

1)Rg. 112/1997 (skipulagsfræði),augl. 845/1999 (verkfræðingar).

4. gr.

Ráðherra skal staðfesta leyfi til að bera starfsheiti sem lög þessi taka til samkvæmt umsókn ríkisborgara frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins ef viðkomandi leggur fram vottorð frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins sem uppfyllir skilyrði:
1. tilskipunar 85/384/EBE ef um arkitekt er að ræða.
2. tilskipunar 89/48/EBE ef um aðrar starfsstéttir er að ræða.

Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica