Reglur um ungfélagaaðild

Reglur um ungfélagaaðild að TFÍ

1. grein

Sá sem áhuga hefur á að gerast ungfélagi í TFÍ, snýr sér til skrifstofu félagsins og aflar sér þar upplýsinga um kröfur þær, sem félagið gerir til nýrra ungfélaga.
TFÍ skal gera væntanlegum umsækjanda ljóst, að viðkomandi beri sú skylda, að veita félaginu hver þau gögn, sem það telur nauðsynleg, til staðfestingar á að hann uppfylli viðkomandi kröfur.
Sönnunarbyrði þar að lútandi hvílir öll á umsækjanda.

2. grein

Telji viðkomandi sig uppfylla kröfur félagsins til nýrra ungfélaga, fyllir umsækjandi út sérstakt umsóknareyðublað og leggur fram gögn með umsókn sinni. Gögn þessi skulu veita sem gleggstar upplýsingar um þau atriði, sem við eiga, sbr. grein 5 hér á eftir.
Frekari gagna kann að verða óskað.

3. grein

Framkvæmdastjóri félagsins sendir menntunarnefnd TFÍ til umsagnar allar umsóknir um ungfélagaaðild.

4. grein

Menntunarnefnd TFÍ leggur hlutlaust mat á umsóknir þær, sem henni berast. Hafi umsækjandi bein eða óbein samskipti við nefndarmenn varðandi umsókn sína, meðan á afgreiðslu hennar stendur, fyrirgerir umsækjandi hlutleysi nefndarinnar.

5. grein

Mat menntunarnefndar TFÍ tekur mið af þeim grunnreglum sem fylgja hér á eftir:

  1. Umsækjandi skal vera í fullu námi samkvæmt skilgreiningu viðkomandi skóla.
  2. Námið skal uppfylla kröfur samanber mat TFÍ á umsóknum um tæknifræðingstitil.
  3. Umsækjandi skal hafa lokið minnst 30 e af viðurkenndu tæknifræðinámi (hver eining svarar til einnar viku í fullu námi).

6. grein

Menntunarnefnd TFÍ sendir framkvæmdastjóra félagsins umsögn sína.

7. grein

Ef umsögn menntunarnefndar er jákvæð og umsækjandi er íslenskur ríkisborgari ber stjórn að veita honum aðild að TFÍ sem ungfélaga.
Ef umsögn menntunarnefndar er jákvæð, en umsækjandi er erlendur ríkisborgari, þarf meirihluti stjórnar TFÍ að samþykkja inngöngu viðkomandi.
Ef umsögn menntunarnefndar er neikvæð getur stjórn ekki veitt viðkomandi ungfélagaaðild að TFÍ, nema í algjörum undantekningartilvikum. Í slíkum tilfellum þarf stjórn að samþykkja inngöngu samhljóða.

8. grein

Framkvæmdastjóri tilkynnir umsækjanda hverja afgreiðslu umsóknin hefur hlotið.

9. grein

Ungfélagi verður fullgildur félagi í Tæknifræðingafélagi Íslands þegar hann hefur lokið tæknifræðiprófi sem uppfyllir skilyrði félagsins til inngöngu.
Ef ungfélagi hefur ekki stundað formlegt tæknifræðinám í meira en hálft ár getur stjórn félagsins vikið honum úr því þar sem hann uppfyllir ekki lengur þær kröfur sem gerðar eru til ungfélaga.

10. grein

Reglur þessar hlutu staðfestingu stjórnar Tæknifræðingafélags Íslands þann september 1995.

Senda grein

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica