Viðburðir

Fyrirsagnarlisti

07.02.2012, kl. 12:00 - 13:00 Sameiginlegir atburðir Leiðtogafærni

Fyrirlestraröð STFÍ

Fyrirlesturinn fjallar um eitt og annað sem gagnlegt er að hafa í huga þegar kemur að því að hafa uppbyggileg áhrif á aðra og fá þá til að vinna með sér. Meðal annars er fjallað um ólíkar aðferðir til að leiða aðra, sjálfstjórn, streitu og heilbrigði, og tengsl hugvits, siðvits og verksvits.
 

08.02.2012, kl. 9:00 - 16:00 Sameiginlegir atburðir Tækniundrið Harpa

Ráðstefna VFÍ og TFÍ haldin í Hörpu um verkfræðileg og tæknileg mál tengd byggingu hússins. Þar gefst einstakt tækifæri til að hlýða á fyrirlesara sem voru í lykilstöðum við þessa miklu framkvæmd. Sjá dagskrá í frétt dag. 2. febrúar hér á vefnum.
 

29.02.2012 Sameiginlegir atburðir Málþing um Einar B. Pálsson

Þann 29. febrúar verður þess minnst að 100 ár verða liðin frá fæðingu Einars B. Pálssonar verkfræðings en hann lést 28. október síðastliðinn. Að málþinginu standa Háskóli Íslands, Verkfræðingafélag Íslands og Reykjavíkurborg. Lesa meira
 

01.03.2012, kl. 12:00 - 13:00 Sameiginlegir atburðir Stefnumótunarfærni

Fyrirlestraröð STFÍ

Fyrirlesturinn fjallar um eitt og annað sem gagnlegt er að hafa í huga þegar kemur að því að marka stefnu fyrir fyrirægi, félög og stofnanir. Meðal annars er fjallað um ólíkar stefnumótunaraðferðir, aðferðir til að rýna starfsemina og gera úttektir og markmiðasetningu.
 

08.03.2012 Sameiginlegir atburðir Framtíðarnýting orkuauðlinda

Ráðstefna á vegum VFÍ haldin á Grand Hótel Reykjavík. Dagskráin verður birt hér á vefnum innan tíðar.
 

27.03.2012, kl. 12:00 - 13:00 Sameiginlegir atburðir Samskiptafærni

Fyrirlestraröð STFÍ

Fyrirlesturinn fjallar um eitt og annað sem gagnlegt er að hafa í huga þegar kemur að því eiga samskipti við aðra og fá þá til að vinna með sér í teymum. Meðal annars er fjallað um ólíkar aðferðir í samskiptum og um eðli hópa og teymisvinnu.
 

29.03.2012 Sameiginlegir atburðir Jarðstengir

Er vinnuheiti málþings sem Rafmagnsverkfræðingadeild VFÍ (RVFÍ) efnir til um jarðstrengi og möguleika í notkun þeirra hér á landi. Meðal fyrirlesara verður Unnur Stella Guðmundsdóttir sem er starfar í Danmörku sem sérfræðingur á þessu sviði.
 

19.04.2012 Sameiginlegir atburðir 100 ára afmælishátíð VFÍ

100 ára afmælishátíð Verkfræðingafélags Íslands í Hörpunni. Allir félagsmenn og velunnarar VFÍ velkomnir.
 

03.05.2012, kl. 12:00 - 13:00 Sameiginlegir atburðir Skipulagsfærni

Fyrirlestraröð STFÍ

Fyrirlesturinn fjallar um eitt og annað sem gagnlegt er að hafa í huga þegar kemur að því að vinna verkefni sem gera kröfu um árangur. Meðal annars er fjallað um skilgreiningar verkefna, áætlanagerð, framkvæmd, eftirfylgni og lúkningu verkefna.
 



Viðburðir

« feb 2012 »
SMÞMFFL
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Viðburðir


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica