Fyrirsagnarlisti
14.01.2010
Sameiginlegir atburðir
Samlokufundur - námskynning
Kynntar verða vær nýjar námsbrautir á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. · Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar – fjármögnun, samningar, útboðsreglur og uppgjör. Ragna Haraldsdóttir, verkefnastjóri hjá Endurmenntun mun kynna námsbrautina en Jóhannes Karl Sveinsson, hrl. og lektor við HÍ og Sigríður Sigurðardóttir, arkitekt og sviðstjóri hjá Eflu svara fyrirspurnum en þau sitja bæði í fagráði námsins. · Matsfræði. Erna Agnarsdóttir, námstjóri Endurmenntun kynnir en Ragnar Ómarsson, byggingatæknifræðingur og fulltrúi Matsmannafélags Íslands svarar fyrirspurnum. Fundurinn hefst kl. 12 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Að venju fá félagsmenn samlokur og drykki án endurgjalds, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir. Allir velkomnir.