Viðburðir

Fyrirsagnarlisti

10.06.2010 Sameiginlegir atburðir Mannvirkjaiðnaður á tímamótum

Getur gæðastjórnun hjálpað?

Eyjólfur Bjarnason, gæðastjóri ÍAV, verður gestur á Samlokufundi VFÍ og TFÍ fimmtudaginn, 10. júní. Hann flytur erindið: Mannvirkjaiðnaður á tímamótum.—Getur gæðastjórnun hjálpað? Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 12-13. Að venju fá félagsmenn samlokur og drykki án endurgjalds, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir. Allir velkomnir.
 

16.06.2010 Sameiginlegir atburðir Kynningarfundur Almenna lífeyrissjóðsins

Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, mun kynna stöðu sjóðsins og framtíðarhorfur. Á fundinn mætir einnig Páll Á. Pálsson, formaður stjórnar og munu Gunnar og Páll svara fyrirspurnum að lokinni kynningu. Sjóðfélagar úr hópi tæknifræðinga og verkfræðinga eru eindregið hvattir til að mæta. Fundurinn verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 12-13. Að venju fá félagsmenn ókeypis samlokur og drykki, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir. Vefsíða Almenna lífeyrissjóðsins, www. almenni.is
 



Viðburðir

« jún 2010 »
SMÞMFFL
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Viðburðir


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica