Viðburðir

Fyrirsagnarlisti

02.09.2010 - 07.09.2010 Sameiginlegir atburðir Rýni 2010 - Þýskaland

Frá árinu 1998 hefur TFÍ skipulagt árlegar námsferðir á erlenda grund fyrir tæknifræðinga og verkfræðinga. Í ár er ferðinni heitið til Dresden í Þýskalandi. Ítarlegar upplýsingar um ferðina eru í frétt hér á vefsíðunni, dags. 13. apríl 2010.
 

15.09.2010 - 16.09.2010 Sameiginlegir atburðir Eyjafjallajökull og flugrekstur

Ráðstefna Flugakademíu Keilis um eldgosið í Eyjafjallajökli og áhrif öskufalls á flugrekstur. Til ráðstefnunnar hefur verið boðið vísindamönnum, forráðamönnum í flugrekstri og fulltrúum opinberra aðila. VFÍ og TFÍ eru samstarfsaðilar Keilis við undirbúning ráðstefnunnar og fá félagsmenn 50% afslátt af þátttökugjaldi.
 

30.09.2010 - 01.10.2010 Sameiginlegir atburðir NIL fundur á Íslandi

Norrænn launafundur verkfræðinga og tæknifræðinga, NIL 2010, verður haldinn í Reykjavík á vegum TFÍ og SV. Um er að ræða árlega fundi þar starfsmenn norrænu félaganna bera saman bækur sínar um kjaramál.
 

30.09.2010, kl. 12:00 - 13:00 Sameiginlegir atburðir Fagstéttir, hrunið og framtíðin

Gestir Samlokufundar verða Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur og Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur. Yfirskrift fundarins er: Fagstéttir, hrunið og framtíðin en þeir munu ræða stöðu fagstétta með sérstöku tilliti til sjálfstætt starfandi sérfræðinga. Ljóst er að fagstéttir hafa ekki það traust meðal almennings sem þær almennt höfðu áður. Hvaða áhrif hafði hrunið á þá þróun og hvað geta fagstéttir gert til þess að endurheimta þennan mikilvæga þátt í viðgangi sínum og hlutverki? eru meðal spurninga sem leitast verður við að svara. Fundurinn er í boði Félags stjórnenda og sjálfstætt starfandi tæknifræðinga (STFÍ) og eru allir félagsmenn TFÍ, SV og VFÍ velkomnir á fundinn sem verður í húsnæði ÍSTAKS, Engjateigi 7, og hefst kl. 12.
 



Viðburðir

« sep 2010 »
SMÞMFFL
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Viðburðir


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica