Fyrirsagnarlisti
13.01.2011, kl. 12:00 - 13:00
Sameiginlegir atburðir
Samlokufundur á vegum BVFÍ
Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins fjallar um nýju skipulagslögin. Haraldur Sigurðsson, verkefnisstjóri aðal- og svæðisskipulags Reykjavíkurborgar segir frá vinnu við endurskoðun aðalskipulagsins og nýjar áherslur við gerð þess. Vinsamlega athugið að fundurinn verður í salarkynnum Ístaks, Engjateigi 7. Allir verkfræðingar og tæknifræðingar velkomnir. Að venju fá félagsmenn samloku og drykkjarföng án endurgjalds, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir.