Fyrirsagnarlisti
07.02.2012, kl. 12:00 - 13:00
Sameiginlegir atburðir
Leiðtogafærni
Fyrirlestraröð STFÍ
Fyrirlesturinn fjallar um eitt og annað sem gagnlegt er að hafa í huga þegar kemur að því að hafa uppbyggileg áhrif á aðra og fá þá til að vinna með sér. Meðal annars er fjallað um ólíkar aðferðir til að leiða aðra, sjálfstjórn, streitu og heilbrigði, og tengsl hugvits, siðvits og verksvits.
08.02.2012, kl. 9:00 - 16:00
Sameiginlegir atburðir
Tækniundrið Harpa
Ráðstefna VFÍ og TFÍ haldin í Hörpu um verkfræðileg og tæknileg mál tengd byggingu hússins. Þar gefst einstakt tækifæri til að hlýða á fyrirlesara sem voru í lykilstöðum við þessa miklu framkvæmd. Sjá dagskrá í frétt dag. 2. febrúar hér á vefnum.
22.02.2012
Sameiginlegir atburðir
Kynningarfundur á Akureyri
Kynningarfundur fyrir félagsmenn í Norðurlandsdeildum VFÍ og TFÍ. Haldin á Hótel KEA.
23.02.2012, kl. 17:30 - 19:00
Sameiginlegir atburðir
Aðalfundur Austurlandsdeilda VFÍ og TFÍ
Fundurinn haldinn í Þórðarbúi, húsnæði björgunarsveitarinnar á Reyðarfirði. Hefðbundin aðalfundarstörf.
Þann 29. febrúar verður þess minnst að 100 ár verða liðin frá fæðingu Einars B. Pálssonar verkfræðings en hann lést 28. október síðastliðinn. Að málþinginu standa Háskóli Íslands, Verkfræðingafélag Íslands og Reykjavíkurborg.
Lesa meira