Fyrirsagnarlisti
02.09.2010 - 07.09.2010
Sameiginlegir atburðir
Rýni 2010 - Þýskaland
Frá árinu 1998 hefur TFÍ skipulagt árlegar námsferðir á erlenda grund fyrir tæknifræðinga og verkfræðinga. Í ár er ferðinni heitið til Dresden í Þýskalandi. Ítarlegar upplýsingar um ferðina eru í frétt hér á vefsíðunni, dags. 13. apríl 2010.
15.09.2010 - 16.09.2010
Sameiginlegir atburðir
Eyjafjallajökull og flugrekstur
Ráðstefna Flugakademíu Keilis um eldgosið í Eyjafjallajökli og áhrif öskufalls á flugrekstur. Til ráðstefnunnar hefur verið boðið vísindamönnum, forráðamönnum í flugrekstri og fulltrúum opinberra aðila. VFÍ og TFÍ eru samstarfsaðilar Keilis við undirbúning ráðstefnunnar og fá félagsmenn 50% afslátt af þátttökugjaldi.
30.09.2010 - 01.10.2010
Sameiginlegir atburðir
NIL fundur á Íslandi
Norrænn launafundur verkfræðinga og tæknifræðinga, NIL 2010, verður haldinn í Reykjavík á vegum TFÍ og SV. Um er að ræða árlega fundi þar starfsmenn norrænu félaganna bera saman bækur sínar um kjaramál.
30.09.2010, kl. 12:00 - 13:00
Sameiginlegir atburðir
Fagstéttir, hrunið og framtíðin
Gestir Samlokufundar verða Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur og Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur. Yfirskrift fundarins er: Fagstéttir, hrunið og framtíðin en þeir munu ræða stöðu fagstétta með sérstöku tilliti til sjálfstætt starfandi sérfræðinga. Ljóst er að fagstéttir hafa ekki það traust meðal almennings sem þær almennt höfðu áður. Hvaða áhrif hafði hrunið á þá þróun og hvað geta fagstéttir gert til þess að endurheimta þennan mikilvæga þátt í viðgangi sínum og hlutverki? eru meðal spurninga sem leitast verður við að svara. Fundurinn er í boði Félags stjórnenda og sjálfstætt starfandi tæknifræðinga (STFÍ) og eru allir félagsmenn TFÍ, SV og VFÍ velkomnir á fundinn.
20.10.2010 - 22.10.2010, kl. 16:00 - 19:00
Sameiginlegir atburðir
Afmælisdagar TFÍ
Í tilefni af 50 ára afmæli Tæknifræðingafélags Íslands mun félagið standa fyrir afmælisdögum í Háskólanum í Reykjavík dagana 20.-22. október. Fluttir verða fyrirlestrar og afmælishátíðinni mun ljúka með mótttöku og verður boð sent öllum félagsmönnum.