Samþykktar á aðalfundi félagsins 31. mars 2011.

Um áratugaskeið hefur VFÍ haft siðareglur sem félagsmenn eiga að fara eftir. Siðareglurnar voru endurskoðaðar á árinu 2011, einfaldaðar og tekið mið af fjölbreyttum vinnumarkaði félagsmanna VFÍ.

Siðareglur VFÍ

Virðing og jafnrétti

Félagar VFÍ sýna fólki tillitssemi og virðingu, óháð kyni, lífskjörum, þjóðfélagsstöðu, menningu, þjóðerni og kynþætti.

Þetta felur í sér að:

  • Koma fram af tillitssemi, sanngirni, vinsemd og virðingu við annað fólk.
  • Halda ávallt í heiðri góða siði og grundvallargildi samfélagsins.
  • Hafa í heiðri jafnrétti kynja og kynþátta.
  • Virða fag- og ábyrgðarsvið annarra og vinnuframlag þeirra.
  • Stuðla að góðum starfsanda með einlægni, heiðarleika og umburðarlyndi. 

Fagleg ábyrgð og ráðvendni

Félagar VFÍ gera sér grein fyrir faglegri ábyrgð sinni og vinna í samræmi við viðurkenndar gæðakröfur.

Þetta felur í sér að:

  • Viðhalda og endurnýja stöðugt þekkingu sína og færni.
  • Deila þekkingu sinni og færni með samstarfsfólki.
  • Vinna verk sín af faglegri ábyrgð og eftir bestu samvisku.
  • Virða lög og reglur samfélagsins og stéttar sinnar.
  • Gæta hagsmuna viðskiptavina sinna.
  • Gera grein fyrir þeim tengslum eða hagsmunum, sem gætu gert starf þeirra tortryggilegt.
  • Taka ekki við þóknun eða fríðindum frá þriðja aðila í sambandi við verkið eða bjóða fram til þriðja aðila slíka þóknun eða fríðindi. 

Samfélagsleg ábyrgð og sjálfbærni

Félagar VFÍ eru meðvitaðir um áhrif verka sinna á samfélag, umhverfi og náttúru.

Þetta felur í sér að:

  • Setja ávallt í öndvegi öryggi, heilsu og velferð almennings.
  • Gæta þess, að tæknilegar lausnir séu miðaðar við sjálfbærni og ábyrga nýtingu auðlinda.
  • Vera heiðarlegur og hreinskilinn um margþætt áhrif tæknilegra lausna og annarra verkefna, og greina á viðeigandi vettvangi frá atriðum sem gætu ógnað öryggi almennings eða verið skaðleg umhverfinu.
  • Taka virkan þátt í upplýstri opinberri umræðu um samfélagsleg málefni þegar hún beinist að fagsviði verkfræðingsins. 

Nýjar siðareglur VFÍ voru samþykktar á aðalfundi félagsins. Endurskoðun siðareglanna hófst með málþingi í október 2009 og í marsmánuði 2010 var vinnufundur með þjóðfundarformi. Í framhaldi af því var skipuð nefnd sem gerði tillögu að nýjum siðareglum. 

Siðanefnd VFÍ

Kristinn Andersen, formaður kiddi@hi.is
Guðmundur Þorbjörnsson
Sunna Björg Reynisdóttir