Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg var undirritaður í maí 2011 og er gildistími hans frá 1. maí 2011 til 31. mars 2014.
Samningurinn gildir fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga sem starfa hjá borginni.
Launahækkanir samningsins eru:
- Eingreiðsla að fjárhæð 50.000,- kr. fyrir 1. júní 2011 og 25.000,- kr. 1. febrúar 2012.
- 1.júní 2011 hækka laun um 4,6 % þó eigi minna en 12.000,- kr.
- 1. mars 2012 hækka laun um 3,5 % þó eigi minna en 11.000,- kr.
- 1. mars 2013 hækka laun um 3,5 % þó eigi minna en 11.000,- kr.
Orlofsuppbót greidd 1. maí 2011 er 26.900,- kr.
Desemberuppbót greidd 1. desember 2011 er 54.000 kr
Samkvæmt kjarasamningnum greiðir Reykjavíkurborg í eftirtalda sjóði viðkomandi kjarafélags.
- Í Fjölskyldu- og styrktarsjóð 0,75% af heildarlaunum.
- Í Orlofssjóð 0,3% í af heildarlaunum.
- Í Vísindasjóð 1,5% af heildarlaunum og Starfsmenntunar- og starfsþróunarsjóð 0,6% af heildarlaunum.
- Í Starfsendurhæfingarsjóð 0,13% af heildarlaunum.
